Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2026 frá 6. febrúar 2026 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Donika Kolica.
B deild - Útgáfudagur: 20. maí 2026