Atvinnuvegaráðuneyti

1149/2025

Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 374/2012 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128 frá 13. júní 2025 öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1.  Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/351 frá 21. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/1616 um efniviði og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 282/2008 og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2023/2006 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli að því er varðar endurunnið plast og önnur mál sem varða gæðaeftirlit og framleiðslu á efniviðum og hlutum úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 293.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/3190 frá 19. desember 2024 um notkun á bisfenóli A (BPA) og öðrum bisfenólum og bisfenólafleiðum með samræmda flokkun að því er varðar tiltekna hættulega eiginleika í tiltekna efniviði og hluti sem er ætlað að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 2018/213. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 25. september 2025, bls. 33.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 7. október 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 6. nóvember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica