Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1079/2019

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni.

1. gr.

3. tl. í viðauka I við reglugerðina orðast svo:

Á Austurlandi, frá Smjörfjallalínu að Hamarsfjarðarlínu. Undanskildir eru þó bæir í Suður­dal/Suður­byggð í Breiðdal og á Berufjarðarströnd norðan Berufjarðarbotns.

2. gr.

4. tl. í viðauka I við reglugerðina orðast svo:

Á Suðausturlandi frá Hamarsfjarðarlínu að Jökulsá á Breiðamerkursandi.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica