Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

186/2015

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni.

1. gr.

3. tl. í viðauka I við reglugerðina orðast svo:

Á Austurlandi, frá Smjörfjallalínu að Lagarfljótslínu (Lagarfljóti) og Jökulsá í Fljótsdal að austan, þ.m.t. Jökuldalur, Jökulsárhlíð, Hróarstunga og Fljótsdalur að norðan­verðu. Í Fjarðabyggð sunnan varnarlínu í botni Reyðarfjarðar og í Breiðdalshreppi austan Breiðdalsár.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. febrúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Rebekka Hilmarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica