Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

698/2012

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2012/2013. - Brottfallin

Felld brott með:

Breytingareglugerðir:

I. KAFLI

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu veiðileyfa í atvinnuskyni fer skv. 5. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

II. KAFLI

Heildarafli og veiðitímabil.

2. gr.

Leyfilegur heildarafli í óslægðum botnfiski, íslenskri sumargotssíld og humri er sem hér segir:

Tegund/Lestir

A

B

C

D

E

F

G

H

I

1. Þorskur

1/5 sbr. 1. mgr. 4. gr.

 

287

733

675

960

 

 

 

   

Frístundaveiði sbr. 1. tl. 6. gr. laga nr. 116/2006

 

 

 

   

 

300

 

 

 

Til úthlutunar

195.400

287

733

675

960

300

-634

5.471

187.608

4/5 sbr. 2. mgr. 4. gr.

 

1.146

2.934

2.700

3.840

 

 

 

 

Samtals þorskur liðir B til F

 

1.433

3.667

3.375

4.800

300

 

 

  

   

2. Ýsa

1/5 sbr. 1. mgr. 4. gr.

 

53

135

420

 

 

 

 

 

Til úthlutunar

36.000

53

135

420

 

 

-140

1.008

34.524

4/5 sbr. 2. mgr. 4. gr.

 

211

541

1.680

 

 

 

 

 

Samtals ýsa liðir B til F

 

264

676

2.100

 

 

 

 

 

  

3. Ufsi

1/5 sbr. 1. mgr. 4. gr.

 

73

188

 

240

 

 

 

 

Til úthlutunar

50.000

73

188

 

240

 

-533

1.400

48.632

4/5 sbr. 2. mgr. 4. gr.

 

294

751

 

960

 

 

 

 

Samtals ufsi liðir B til F

 

367

939

 

1.200

 

 

  

 

 

4. Steinbítur

1/5 sbr. 1. mgr. 4. gr.

 

13

32

180

 

 

 

 

 

Til úthlutunar

8.500

13

32

180

 

 

-202

238

8.239

4/5 sbr. 2. mgr. 4. gr.

 

50

128

720

 

 

 

 

 

Samtals steinbítur liðir B til F

 

63

160

900

 

 

 

 

 

 

5.1 Gullkarfi

45.000

 

 

 

 

 

 

1.260

43.740

5.2 Djúpkarfi

10.000

 

 

 

 

 

 

280

9.720

6. Grálúða

14.700

 

 

 

 

 

 

412

14.288

7. Sandkoli

800

 

 

 

 

 

 

22

778

8. Skrápflúra

200

 

 

 

 

 

 

6

194

9. Skarkoli

6.500

 

 

 

 

 

 

182

6.318

10. Þykkvalúra

1.400

 

 

 

 

 

 

39

1.361

11. Langlúra

1.100

 

 

 

 

 

 

31

1.069

12. Keila

6.400

 

 

 

 

 

 

179

6.221

13. Langa

11.500

 

 

 

 

 

 

322

11.178

14. Skötuselur

1.800

 

 

 

 

 

 

50

1.750

15. Humar

1.900

 

 

 

 

 

 

53

1.847

16. Íslensk sumargotssíld

64.000

 

 

 

 

 

-26

1.792

62.234

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Til uppbóta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (skel- og rækjubætur).
  3. Til ráðstöfunar skv. 2. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (til stuðnings byggðar­lögum).
  4. Til línuívilnunar skv. 8. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006.
  5. Til strandveiða skv. 6. gr. a laga nr. 116/2006.
  6. Til frístundaveiða skv. 5. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006.
  7. Skerðing flutt milli fiskveiðiára skv. 3. ml. 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006.
  8. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (2,8%).
  9. Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar.

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk.

Veiðitímabil botnfisks er frá og með 1. september 2012 til og með 31. ágúst 2013.

Aflamark í sandkola og skrápflúru miðast við afla sem veiddur er á svæði sunnan 64°30´N við Austurland og sunnan við línu sem dregin er réttvísandi vestur úr Öndverðarnesi. Afli í sandkola og skrápflúru sem veiddur er norðan þessara lína reiknast ekki til afla­marks, sbr. 2. mgr. 15. gr.

Aflamark í humri miðast við slitinn humar.

Veiðitími humars og íslenskrar sumargotssíldar er ákveðinn í sérstakri reglugerð.

Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

3. gr.

Á tímabilinu frá og með 1. september 2012 til og með 31. ágúst 2013 er leyfilegur heildar­afli í eftirfarandi tegundum sem hér segir:

 

Lestir

Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (2,8%)

Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar

1. Hörpudiskur

0

   

2. Innfjarðarækja

0

   

   þ.a. Ísafjarðardjúp

0

   

   þ.a. Arnarfjörður

0

   

Breiðafjörður, norðurfirðir

0

   

Húnaflói

0

   

Skagafjörður

0

   

Skjálfandaflói

0

   

Öxarfjörður

0

   

Eldeyjarsvæði

0

   

Leyfilegur heildarafli í innfjarðarækju er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsókna­stofnunar­innar og verður ákvörðun um heildarafla innfjarðarækju endur­skoðuð að fengnum nýjum tillögum stofnunarinnar.

Veiðitími og heildarafli annarra tegunda er ákveðinn í sérstakri reglugerð eða með sér­stökum leyfum.

III. KAFLI

Frádráttur aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks og skiptimarkaður með aflamark.

4. gr.

Fyrir úthlutun aflamarks skulu frádráttarliðir samkvæmt 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eins og þeir voru fyrir gildistöku 3. gr. laga nr. 70/2011, koma til frádráttar að 1/5 hluta frá leyfðum heildarafla á fiskveiðiárinu 2012/2013, sbr. töflu í 2. gr.

Fyrir úthlutun aflamarks allra tegunda til einstakra skipa, sem háðar eru takmörkun á leyfilegum heildarafla fiskveiðiárið 2012/2013 skal jafnframt draga 2,8% frá úthlutun hverrar tegundar, sbr. 5. og 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Skal því ráðstafað samkvæmt 6. gr. a, 1. tl. 1. mgr. 10. gr., 2. tl. 1. mgr. 10. gr. og 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. töflu í 2. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. þessarar greinar er eigendum skipa heimilt að láta þorsk, ýsu, ufsa, eða steinbít í skiptum fyrir einstakar aðrar tegundir sem viðkomandi skip hefur aflahlutdeild í, enda séu skiptin jöfn í þorskígildum talið. Útgerð skal senda Fiskistofu tilkynningu þar að lútandi eigi síðar en 27. ágúst 2012 vegna tegunda sem úthlutað er um fiskveiðiáramót og eigi síðar en viku eftir að birt hefur verið ákvörðun ráðherra um úthlutun tegunda sem fram fer á öðrum tíma.

5. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta sbr. 6. og 7. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa og steinbít, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Fiskistofa hefur heimild til að binda tilboð við tiltekna tegund til að ná markmiðum 2. ml. 2. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar.

Fiskistofa skal auglýsa eftir tilboðum eigi síðar en 10. hvers mánaðar, frá og með 10. október til og með 10. júlí. Tilboð skulu berast Fiskistofu fyrir kl. 16.00 sjö dögum frá birtingu auglýsingar á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðin er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður. Tilboð og eftir atvikum afturköllun tilboðs skal vera undirritað af eiganda og útgerðaraðila skips.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað. Fiskistofa getur hafnað tilboðum þegar hlutfall magns tegunda er lægra en 20% af hlutfalli verðmætis aflamarks tegundanna. Miða skal í þessu sambandi við meðalverð beggja tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarinn mánuð eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund.

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa eða steinbít, sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

IV. KAFLI

Úthafsrækjuveiðisvæði.

6. gr.

Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð nr. 396/2005, um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl., og rækja, sem veidd er innan viðmiðunarlínu á Breiðafirði sunnan 65°10´N.

Úthafsrækju sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26°V og norðan 65°30´N skal skrá sérstaklega. Skip sem stunda veiðar á Dohrnbanka skulu búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti, frá því skipið lætur úr höfn og þar til það kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

V. KAFLI

Skipting leyfilegs afla.

7. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

VI. KAFLI

Krókaaflamarksbátar.

8. gr.

Veiðileyfi með krókaaflamarki verður ekki gefið út á fiskiskip sem er stærra en 15 brúttó­tonn. Þeir bátar sem eru umfram þá stærð og hafa krókaaflamarksleyfi við gildis­töku þessarar reglugerðar halda þó leyfinu. Bátum, sem leyfi hafa til veiða með króka­afla­marki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum. Fiskistofa getur veitt undanþágu frá banni þessu með sérstökum leyfum til veiða á botndýrum með plógum og gildrum svo og til hrognkelsaveiða í net. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Aflahlutdeild í öðrum tegundum en tilgreindar eru í 1. mgr. er ekki heimilt að flytja til krókaaflamarksbáts. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum skv. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, og reglur settar samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisktegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

VII. KAFLI

Útreikningur aflamarks.

9. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 og löngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila í magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 en löngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í afla­skrán­ingar­kerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunar­stuðulinn 3,4.

Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 6. gr. reglugerðar nr. 224/2006, um vigtun og skráningu sjávarafla. Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara. Við ákvörðun magns hrogna til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við reiknistuðulinn 0,80.

Þorskur styttri en 50 sm (27 sm hausaður) og ufsi styttri en 50 sm (31 sm hausaður), ýsa styttri en 45 sm (26,5 sm hausuð) og karfi styttri en 33 sm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem við­komandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sbr. lög nr. 37/1992, með síðari breytingum.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða afla, sem fæst sem meðafli við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Sé botnfiskafli fluttur óunninn á erlendan markað án þess að hafa verið endanlega vigtaður hér á landi og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal reikna aflann með 5% álagi.

10. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2012 eða síðar til fiskveiðiársins 2012/2013, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

VIII. KAFLI

Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

11. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og er undir 15 brúttótonnum.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Þá mynda veiðar á aflamarki sem flutt hefur verið til skips jafnan rétt til flutnings úthlutaðs aflamarks í þorskígildum talið. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varanlegra breytinga á skipa­kosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning og skal tilkynningin einnig vera undirrituð af útgerðaraðila þess skips sem aflamarkið er flutt til.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir skv. ákvæðum laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna með síðari breytingum. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laga nr. 13/1998 nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða Fiskistofu flutningsgjald að fjárhæð kr. 3.200 með hverri tilkynningu. Þá skal útgerð greiða kr. 7.100 hafi komið til skeyta­sendingar Fiskistofu til útgerðar og skipstjóra skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 57/1996, með síðari breytingum. Gjalddagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða kr. 12.000 til Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknareyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem framkvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning aflamarks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

12. gr.

Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Króka­afla­hlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og er undir 15 brúttótonnum. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mánaðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Að auki skal steinbítur lúta takmörkunum skv. 2. mgr. sömu lagagreinar. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða kr. 5.000.

IX. KAFLI

Veiðiskylda.

13. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. 14. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. Tefjist skip frá veiðum í fimm mánuði samfellt vegna tjóns eða meiri háttar bilana hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

X. KAFLI

Þorskígildisstuðlar.

14. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2012 til 31. ágúst 2013 eru þessir:

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Tegund

Stuðlar

Þorskur

1,00

Ýsa

0,92

Þykkvalúra

1,41

Ufsi

0,73

Grálúða

2,47

Loðna

0,08

Keila

0,39

Langlúra

0,61

Síld

0,20

Langa

0,59

Sandkoli

0,26

Humar, slitinn

4,70

Skötuselur

1,74

Skarkoli

0,74

Gullkarfi

0,82

Steinbítur

0,85

Skrápflúra

0,21

Djúpkarfi

1,03


Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar og varðandi færslu milli tegunda eftir því sem við á, sbr. 11. og 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

XI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

15. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla skv. ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 3. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 6. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni skv. 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

Þegar skip stundar veiðar utan lögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu annars ríkis eða á alþjóðlegu hafsvæði, og um er að ræða veiðar sem grundvallast á samningi sem íslensk stjórnvöld eru ekki aðilar að, skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu mánaðarlega um veiðisvæði, veiðitíma, löndunarhöfn og landaðan afla sundurliðað eftir tegundum.

16. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur sbr. reglugerð nr. 557/2007, um afladagbækur.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður sbr. reglugerð nr. 910/2001, um skýrsluskil vegna viðskipta með afla, með síðari breytingum.

17. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

18. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

19. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Ákvæði 4. gr. koma til framkvæmda við gildistöku þessarar reglugerðar, en ákvæði annarra greina 1. september 2012.

Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 626/2012 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2012/2013.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. ágúst 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica