Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

336/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 975/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1505/2006 um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því er varðar lágmarkseftirlit sem skal fara fram í tengslum við auðkenningu og skráningu sauðfjár og geita.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2012 frá 11. febrúar 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1033/2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1505/2006 að því er varðar árlegar skýrslur aðildarríkjanna um niðurstöður úr eftirlitinu sem fram fór í tengslum við auðkenningu og skráningu sauðfjár og geita.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1033/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, frá 1. mars 2012, bls. 381.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. apríl 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.