Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

660/2011

Reglugerð um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða grænlenskra, norskra og færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, á tímabilinu 6. júlí 2011 til 30. apríl 2012. Óheimilt er að stunda veiðar með öðrum veiðarfærum en nót. Veiðarfæri, sem eru annarrar gerðar en leyfi miðast við, skulu geymd í sérstakri veiðarfærageymslu. Sé flottroll geymt á flottrolls­tromlu skal poki trollsins fjarlægður og geymdur sérstaklega í veiðarfærageymslu.

2. gr.

Aðeins þeim skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi frá Fiskistofu er heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Um borð í veiðiskipi skal vera leyfi til loðnuveiða eða afrit af því.

Skip, sem óska eftir leyfi til loðnuveiða skulu sækja um það til Fiskistofu. Í umsókninni komi fram upplýsingar um nafn skips, skráningarnúmer, kallmerki, stærð í BT, burðar­getu og upplýsingar um fjarskiptatæki. Skip sem afsala sér veiðileyfi skulu tilkynna það Fiskistofu og komi sömu upplýsingar fram og í umsókninni.

3. gr.

Erlendum fiskiskipum er heimilt að veiða loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands sem hér segir:

  1. Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 49.002 lestir í efnahagslögsögu Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2012 og norðan við 64°30´N.
  2. Færeyskum skipum er heimilt að veiða í 9.540 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands.
  3. Grænlenskum skipum er heimilt að veiða 24.156 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Erlend skip sem stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands samkvæmt reglugerð þessari skulu hlíta ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum, nema annað sé sérstaklega ákveðið í reglu­gerð þessari og sömu reglum og eiga við um íslensk skip við sams konar veiðar, m.a. um veiðibann, friðunarsvæði og aðra lokun svæða.

4. gr.

Færeyskum, grænlenskum og norskum skipum er heimilt að landa afla sínum í íslenskum höfnum og gilda um vigtun afla sömu reglur og gilda fyrir íslensk skip. Óheimilt er að umskipa afla í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Færeyskum vinnsluskipum er heimilt að landa 3/4 hluta af kvóta sínum, sbr. 3. gr, til manneldisvinnslu utan Íslands eða taka til manneldis. Eftir 15. febrúar 2012 skal eigi meira en 1/3 hluti af kvóta færeyskra skipa fara til manneldisvinnslu utan Íslands.

5. gr.

Við veiðar í efnahagslögsögu Íslands takmarkast fjöldi norskra skipa, sem fá leyfi til að veiða samtímis, við 30 þar til 1. desember. Eftir þann tíma takmarkast fjöldi þeirra við 20. Ekki skulu fleiri en 10 færeysk skip stunda loðnuveiðar samtímis.

Óheimilt er að hefja veiðar í fiskveiðilandhelginni nema fyrir liggi staðfesting frá Landhelgisgæslu Íslands um að fjöldi skipa sé innan tilskilinna marka.

Ekki skulu fleiri loðnuveiðiskip frá hverri þjóð vera í fiskveiðilandhelgi Íslands hverju sinni, en hlotið hafa staðfestingu frá Landhelgisgæslunni, sbr. þó 12. gr.

6. gr.

Skip skulu, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands hefjast og á leið út úr fiskveiðilandhelgi Íslands, sigla um einn af eftirfarandi athugunarstöðum:

a)

65°00´N - 10°00´V

b)

66°15´N - 09°00´V

c)

67°30´N - 10°00´V

d)

68°30´N - 11°00´V

e)

69°15´N - 13°00´V

f)

68°40´N - 16°30´V

g)

68°00´N - 20°00´V



Landhelgisgæslu Íslands er heimilt að ákveða hvaða athugunarstað veiðiskip siglir um. Heimilt er með samþykki Landhelgisgæslunnar að halda til annarra athugunarstaða en tilgreindir eru í 1. mgr.

Óheimilt er að yfirgefa athugunarstað áður en tilkynntur komutími er liðinn, skv. 8. og 11. gr., nema að fengnu samþykki Landhelgisgæslunnar.

7. gr.

Skip sem leyfi hafa fengið til loðnuveiða sbr. 2. gr. skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða með sjálfvirkum hætti á klukkustundar fresti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin. Þó er norskum skipum heimilt að senda upplýsingar sínar til Eftirlitsstöðvarinnar í gegnum Fiskistofu í Noregi.

Norskum skipum sem halda rafræna afladagbók er heimilt að senda tilkynningar rafrænt til Noregs sem áframsendir þær í rauntíma til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgis­gæslu og Fiskistofu Íslands.

8. gr.

Tilkynna skal Eftirlitsstöðinni siglingu skipsins inn í íslenska lögsögu og komutíma í athugunarstað með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara.

Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "komutilkynning" (COE report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Athugunarstaður sem siglt verður um sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er í 1. mgr.

9. gr.

Skip sem stundar veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands skal á hverjum degi á tímabilinu frá kl. 00.00 til 08.00 að íslenskum tíma, senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu þar sem eftir­farandi kemur fram í þessari röð:

Orðið "aflatilkynning" (CAT report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðasta sólarhrings, miðað við kl. 24.00, eða afli frá því skipið kom inn í fiskveiðilandhelgi Íslands sé um skemmri tíma að ræða.

10. gr.

Þegar skip lýkur veiðum í fiskveiðilandhelgi Íslands skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "lokatilkynning" (COX report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Afli síðan síðasta aflatilkynning var send.

11. gr.

Áður en skip heldur út úr fiskveiðilandhelgi Íslands skal senda Eftirlitsstöðinni tilkynningu um það og komutíma í athugunarstað með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "athugunartilkynning" (CON report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.

Athugunarstaður sem siglt verður um sbr. 6. gr. og fyrirhugaður komutími á staðinn.

Landi skip afla sínum í íslenskri höfn skal tilkynna það Eftirlitsstöðinni á sama hátt og greint er frá í 1. mgr. en í stað athugunarstaðar í síðasta lið verði greint frá löndunarhöfn.

Heimilt er að senda saman tilkynningu um lok veiða sbr. 10. gr. og um komu á athugunarstað. Við sendingu slíkrar tilkynningar eiga við ákvæði þessarar greinar að öðru leyti en því að í stað orðsins: "athugunartilkynning" (CON report) koma orðin: "loka- og athugunartilkynning" (COX og CON report).

12. gr.

Þrátt fyrir ákvæði 5. gr. er skipum sem ekki hafa staðfestingu Landhelgisgæslunnar sbr. 3. og 4. mgr. 5. gr. heimil óslitin sigling um fiskveiðilandhelgina, enda tilkynni þau til Landhelgisgæslunnar um komu sína í fiskveiðilandhelgina, eða brottför úr íslenskri höfn, með minnst 2 klukkustunda fyrirvara og mest 6 klukkustunda fyrirvara. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "In".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Heildarafli um borð, í tonnum.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar sigling út úr lögsögunni er áætluð.

Á 12 klukkustunda fresti skal síðan senda tilkynningu um staðsetningu skipsins til Landhelgis­gæslunnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "Staðsetningartilkynning" (POS report).
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími, stefna, hraði og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.

Þegar skip siglir út úr íslenskri fiskveiðilandhelgi skal það tilkynnt til Landhelgis­gæslunnar. Í tilkynningunni komi eftirfarandi upplýsingar fram í þessari röð:

Orðið "Out".
Nafn skips.
Kallmerki.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd, þegar tilkynning er send.
Dagsetning, tími og staðsetning í breidd og lengd þegar skip siglir út úr lög­sögunni.

13. gr.

Skipstjórum erlendra loðnuskipa ber að auðvelda eins og unnt er eftirlit Landhelgisgæslu og Fiskistofu með veiðum, veiðarfærum og afla um borð í veiðiskipum. Telji eftirlitsaðilar að fullnægjandi eftirlit geti ekki farið fram á sjó er hlutaðeigandi skipstjórum skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem athugun getur farið fram.

Fiskistofu er heimilt að setja eftirlitsmenn um borð í erlend loðnuveiðiskip. Skal útgerð skipsins sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð við eftirlit og ennfremur greiða allan kostað af veru þeirra um borð í skipinu.

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið skv. 2. gr. til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar. Í afladagbók, sem skal vera innbundin með númeruðum síðum og í tvíriti, skal skipstjóri skrá eftirfarandi upplýsingar: nafn skips, veiðisvæði, veiðitíma og afla í hverju togi eða kasti. Staðfestar aflatölur hvers mánaðar og afrit af afladagbókunum skal senda Fiskistofu eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum skips líkur.

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar og Veiðieftirlits Fiskistofu skulu hafa aðgang að eftir­töldum gögnum sé þess óskað:

Afladagbók.
Skipsdagbók.
Mælibréfi.
Teikningum af skipi.
Veiðileyfi frá Fiskistofu eða afriti af því.
Upplýsingum úr siglingatölvum og staðsetningartækjum skips.
Öðrum gögnum sem skipt geta máli við rannsókn meintra fiskveiðibrota.

Um borð í hverju skipi skulu vera teikningar af lestum þess þar sem fram kemur heildar­rúmmál hverrar lestar. Þá skulu teikningar eða gögn sýna hvert rúmmál lestanna er miðað við 10 sentimetra millibil frá ákveðnum og merktum viðmiðunarstað.

14. gr.

Skipum ber að fylgja banni ráðuneytisins við veiðum vegna verndunarsjónarmiða og skyndilokunum Hafrannsóknastofnunarinnar, sbr. 8.-11. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

15. gr.

Heimilt er að veita undanþágu frá ákvæðum 6. gr. og 8.-11. gr. hafi aðilar gert samkomu­lag þar um.

16. gr.

Tilkynningar skv. 7.-11. gr. skal senda á íslensku eða ensku, og skulu tímasetningar vera miðaðar við íslenskan tíma, UTC.

Skip sem hafa veiðileyfi skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

17. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

Jafnframt getur Fiskistofa svipt skip leyfi til loðnuveiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skips eða aðrir sem í þágu útgerðar starfa, gegn reglugerð þessari.

18. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 5. júlí 2011.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica