Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

475/2010

Reglugerð um bann við dragnótaveiðum. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 7. júní 2010 til og með 6. júní 2015 eru allar dragnótaveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

  1. Húnafjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru á milli Sölvabakka 65°42,5´ N - 020°16,5´ V, norðurenda Fáskrúðsskers 65°42,5´ N - 020°42,8´ V og þaðan í 180° réttvísandi til lands.

  2. Skagafjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er á milli Ásnefs 65°56,5´ N - 019°53,0´ V og Þórðarhöfða 65°58,4´ N - 019°29,7´ V.

  3. Hrútafjörður - Miðfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er þvert yfir utanverðan Hrútafjörð og Miðfjörð eftir 65°27´ N.

  4. Húnaflói - veiðar eru bannaðar skipum lengri en 22 m að mestu lengd innan línu sem dregin er eftir 66°00´ N þvert yfir Húnaflóa.

  5. Seyðisfjörður - Loðmundarfjörður innan svæðis sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra fjögurra punkta: 65°21,672´ N - 013°43,330´ V, 65°19,954´ N - 013°43,330´ V, 65°19,0´ N - 013°34,500´ V og 65°16,195´ N - 013°34,500´ V.

  6. Önundarfjörður innan svæðis sem markast af línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta: 66°03,140´ N - 023°38,164´ V og 66°03,900´ N - 023°33,070´ V.

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 31. maí 2010.

Jón Bjarnason.

Steinar I. Matthíasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica