Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

637/2008

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2007/2008. - Brottfallin

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2007/2008 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflaheimildum sem nema allt að 4.385 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðarlögum, þannig:

a. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

b. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

c. Til byggðarlaga skv. ákvæði til bráðabirgða, nr. VI, í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

d. Til sveitarfélaga með færri íbúa en 400 sbr. 4. gr. D reglugerðar þessarar.

Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 1500, miðað við 1. desember 2007.

2. gr.

Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast á eftirgreindar botnfisktegundir, miðað við slægðan fisk, þannig: Þorskur 2.250 lestir, ýsa 1.730 lestir, ufsi 1.298 lestir og steinbítur 232 lestir. Skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þessara tegunda áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar.

3. gr.

Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 2.000 þorskígildislestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 1.900 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þá skal 500 tonnum úthlutað til byggðarlaga sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá Byggðastofnun, sbr. 4. gr. C.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða 4. gr. B.

4. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

A. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 1.500. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:

1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1997/1998 að telja til fiskveiðiársins 2006/2007, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 1500 íbúa þann 1. desember 2007, skal gefa tvo punkta.

2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1997/1998 að telja til fiskveiðársins 2007/2008, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 1500 íbúa þann 1. desember 2007, skal gefa tvo punkta.

3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 1997/1998 að telja til fiskveiðiársins 2006/2007, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 1500 íbúa þann 1. desember 2007, skal gefa fjóra punkta.

Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildislestir og að hámarki 150 þorskígildislestir.

Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2006/2007.

Hafi íbúum byggðarlags sem naut úthlutunar á fiskveiðiárinu 2005/2006 fjölgað svo mikið frá 1. desember 2005 til 1. desember 2006, að það eigi ekki lengur rétt á úthlutun samkvæmt þessari grein, skal ráðuneytið, næstu tvö ár þar á eftir, reikna út hlut byggðarlagsins skv. 1. mgr. þessarar greinar og úthluta til byggðarlagsins. Þó skal úthlutunin aldrei vera hærri en sem nemur 2/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2005/2006 á fyrra ári og 1/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2005/2006 á síðara ári, eða að hámarki útreiknuð úthlutun byggðarlagsins sé hún lægri.

Hafi íbúum byggðarlags sem naut úthlutunar á fiskveiðiárinu 2006/2007 fjölgað svo mikið frá 1. desember 2006 til 1. desember 2007, að það eigi ekki lengur rétt á úthlutun samkvæmt þessari grein, skal ráðuneytið, næstu tvö ár þar á eftir, reikna út hlut byggðarlagsins skv. 1. mgr. þessarar greinar og úthluta til byggðarlagsins. Þó skal úthlutunin aldrei vera hærri en sem nemur 2/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2006/2007 á fyrra ári og 1/3 af úthlutun fiskveiðiársins 2006/2007 á síðara ári, eða að hámarki útreiknuð úthlutun byggðarlagsins sé hún lægri.

B. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags samkvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:

Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel og rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2001/2002, 2002/2003, 2003/2004 eða 2004/2005 að telja til fiskveiðiársins 2006/2007 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 lestir í þess hlut. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur.

C. Á fiskveiðiárinu 2007/2008 skal þeim byggðarlögum eða sveitarfélögum, sem úthlutað var sérstökum aflaheimildum frá Byggðastofnun, sbr. ákvæði til bráðabirgða XXVI við lög nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, á fiskveiðiárinu 2005/2006, úthlutað aflaheimildum sem nema 500 þorskígildislestum. Skulu þær skiptast milli byggðarlaga í sömu hlutföllum og úthlutun samkvæmt bráðabirgðaákvæðinu skiptist á fiskveiðiárinu 2005/2006. Um framkvæmd þessa ákvæðis gilda að öðru leyti önnur ákvæði þessarar reglugerðar.

D. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A., B. og C. hér að ofan, skal hlutur sveitarfélaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2005/2006, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn milli fiskveiðiáranna 2006/2007 og 2007/2008.

5. gr.

Tilkynningar um aflaheimildir.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 10. gr. og ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2007/2008. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 604, 24. júní 2008.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. júlí 2008.

Einar K. Guðfinnsson.

Sigurgeir Þorgeirsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica