Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1005/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 742, 24. júlí 2008, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2008/2009. - Brottfallin

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Á tímabilinu 1. september 2008 til 31. ágúst 2009 er leyfilegur heildarafli úr neðan­greindum tegundum sem hér segir:

 

Tegund

Lestir

1.

Síld (íslensk sumargotssíld)

150.000

2.

Úthafsrækja

7.000

3.

Humar

2.200

4.

Hörpudiskur samtals

0

5.

Innfjarðarækja samtals

500

 

þ.a. Arnarfjörður

500


Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk. Aflamark í humri miðast við slitinn humar.

Veiðitímabil síldar er frá og með 1. september 2008 til og með 1. maí 2009.

Miðað er við að veiðitímabil innfjarðarækju standi frá 1. nóvember 2008 til og með 30. apríl 2009. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum innfjarðarækju, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar.

Óheimilt er að stunda humarveiðar frá og með 1. nóvember 2008 til og með 15. mars 2009.

Veiðitími og heildarafli annarra tegunda er ákveðinn í sérstakri reglugerð.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 31. október 2008.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica