Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1023/2008

Reglugerð um sérstök línu- og netasvæði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 6. nóvember 2008 til og með 31. desember 2008, eru allar veiðar með fiski­botn­vörpu bannaðar á svæði suður af Reykjanesskaga, sem að austan markast af línu sem dregin er frá Selvogsvita í punkt 63°30'N, 21°39'V. Að sunnan markast svæðið af línu, sem dregin er úr punkti 63°30'N, 21°39'V í punkt 63°40'N, 22°32'V. Að vestan markast svæðið af línu sem dregin er úr punkti 63°40'N, 22°32'V réttvísandi norður að Staðarbergi.

2. gr.

Frá og með 6. nóvember 2008 til og með 30. apríl 2009, eru allar veiðar með fiski­botn­vörpu bannaðar á svæði út af Faxaflóa, sem að sunnan markast af línu sem dregin er réttvísandi 270° frá Sandgerðisvita. Að vestan markast svæðið af 23°42'V og að norðan af 64°20'N.

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 4. nóvember 2008.

F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica