Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

14/2009

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 4. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, og í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópubandalagsins sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
kg % kr./kg
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.01.09 - 31.12.09 100.000 0 0
0203.2100,
0203.22xx Svínakjöt, fryst 01.01.09 - 31.12.09 100.000 0 0
0203.29xx Svínakjöt, fryst 01.01.09 - 31.12.09 100.000 0 0
0207.1200,
0207.3300 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01.09 - 31.12.09 100.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01.09 - 31.12.09 100.000 0 0
0208.9003 Rjúpur, frystar 01.01.09 - 31.12.09 ótilgreint 0 0
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.01.09 - 31.12.09 50.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01.09 - 31.12.09 20.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01.09 - 31.12.09 80.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01.09 - 31.12.09 50.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01.09 - 31.12.09 50.000 0 0

(**) Skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 12. gr. tollalaga og 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. janúar 2009.

Einar K. Guðfinnsson.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.