Prentað þann 29. mars 2024
Breytingareglugerð
501/2010
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 601/2008 um kröfur um sjálfvirkt kerfi til að skiptast á fluggögnum milli flugstjórnardeilda.
1. gr.
Við 4. gr. bætist nýr stafliður, sem orðist svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 29/2009 frá 16. janúar 2009 um kröfur um gagnatengingaþjónustu fyrir samevrópska loftrýmið, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2009 frá 3. júlí 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, 20. maí 2010, bls. 123.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 21. maí 2010.
Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.