Mennta- og menningarmálaráðuneyti

479/2019

Reglugerð um breyting á reglugerð um skipan og störf starfsgreinaráða, nr. 711/2009.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 5. gr. reglugerðarinnar:

Í stað orðanna "einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af Samtökum atvinnu­lífsins og tveir tilnefndir af Félagi íslenskra snyrtifræðinga" í 9. mgr. kemur: tveir tilnefndir af Alþýðu­sambandi Íslands og tveir tilnefndir af Samtökum atvinnulífsins.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 25. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 2. maí 2019.

Lilja D. Alfreðsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica