Atvinnuvegaráðuneyti

453/2025

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 350/2024 um fjárfestingastuðning í kornrækt.

1. gr.

Í stað orðanna "5. gr." í 2. málsl. 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 6. gr.

 

2. gr.

Bráðabirgðaákvæði við reglugerðina verður svohljóðandi:

Reglugerðin miðast við það fjármagn sem er til ráðstöfunar til fjárfestingastyrkja í kornrækt á árinu 2025 og skal endurskoðuð fyrir lok þess árs. Ákvæði 1. mgr. 6. gr. um heimild til að styðja sömu framkvæmd í þrjú ár eru með fyrirvara um nauðsynlegar fjárheimildir Alþingis á árunum 2026 og 2027.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 19. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 og 81. gr. búvöru­laga nr. 99/1993.

 

Atvinnuvegaráðuneytinu, 20. mars 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica