Landbúnaðarráðuneyti

933/2004

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á frjóeggjum og mysudufti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A við tollalög, nr. 55/1987, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.


2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara
Tímabil
Vörumagn
Verðtollur
Magntollur
Tollnúmer:
kg
%
kr./kg
0407.0001 Frjóegg (af tegund Gallus
domesticus)
01.01 - 31.12.05
ótilgr.
0
0
0404.9000 Annað (mysuduft)
01.01 - 31.12.05
ótilgr.
0
5


Tímabil þau sem tilgreind eru miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu, skal þó miða við dagsetningu hennar.


3. gr.

Við innflutning á frjóeggjum (0407.0001) skal gætt ákvæða laga nr. 54/1990 um innflutning dýra.


4 gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


5 gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2005.


Landbúnaðarráðuneytinu, 19. nóvember 2004.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.
Atli Már Ingólfsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica