Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Stofnreglugerð

402/2004

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smjöri og ostum.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar landbúnaðarráðherra tollkvótum skv. viðaukum III A og IV A við tollalög númer 55/1987 með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu a og b gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollnúmer: kg % kr./kg
a)
0405.xxxx Smjör og önnur fita 01.07.04 - 30.06.05 53.000 0 220
b) Ostur og ystingur: 119.000
0406.1000 Nýr ostur, mysuostur o.fl. 01.07.04 - 30.06.05 0 156
0406.2000 Hvers konar rifinn eða mulinn ostur 01.07.04 - 30.06.05 0 156
0406.3000 Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn 01.07.04 - 30.06.05 0 117
0406.4000 Gráðostur 01.07.04 - 30.06.05 0 179
0406.9000 Annar ostur 01.07.04 - 30.06.05 0 175

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils. Hafi vara hlotið bráðabirgðatollafgreiðslu skal þó miða við dagsetningu hennar.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað skv. auglýsingu landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt sé ákvæði reglugerðar nr. 416/2002, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Heimilt er að endurúthluta tollkvótum hafi handhafi þeirra ekki sótt heimildabréf fyrir 31. ágúst 2004 eða lagt fram fullnægjandi tryggingu fyrir greiðslu tollkvótans, hafi tilboð ráðið úthlutun. Handhafi tollkvóta á þá ekki endurkröfurétt á ríkissjóð.

5. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 65. gr., 65. gr. A og 87. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi og gildir til 1. júlí 2005.

Landbúnaðarráðuneytinu, 10. maí 2004.

Guðni Ágústsson.

Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.