Matvælaráðuneyti

52/2024

Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 630/2007, um ólífrænan áburð.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Svo hægt sé að tryggja nægilegt framboð á tilbúnum áburði fyrir árið 2024 skal, þrátt fyrir 3. gr. reglugerðar þessarar, vera heimilt til ársloka 2024 að flytja inn og nota hérlendis ólífrænan áburð, sem inniheldur fosfór og inniheldur kadmíum að hámarki 136 mg Cd/kg P eða 60 mg Cd/kg P2O5. Leggja skal fram staðfestingu á kadmíuminnihaldi skv. ákvæðum 3. gr. og önnur skilyrði reglu­gerðar­innar standa óbreytt.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 19. janúar 2024.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica