Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

364/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

Við upptalningu á skaðvöldum í viðauka I með reglugerðinni bætist eftirfarandi:

 

Phytophthora ramorum

lyngrós, lerki, eik o.fl.

2. gr.

Við viðauka III bætist eftirfarandi: trjáættkvísl sem bannað er að flytja til landsins (fræ eru undanskilin).

 

12)

Þinur (Abies spp.) til áframhaldandi ræktunar.

3. gr.

Við viðauka IV bætist nýr liður í plöntur til áframhaldandi ræktunar eða fjölgunar:

 

f)

Lyngrósir (Rhododendron spp.) að undanskilinni Rhododendron simsii, má ein­göngu flytja inn ef plöntur koma frá vaxtarstað þar sem Phytophthora ramorum finnst ekki.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og öðlast gildi 1. júní 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. mars 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Baldur Arnar Sigmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica