Fara beint í efnið

Prentað þann 10. maí 2024

Breytingareglugerð

320/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1088/2013 um reykköfun.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr reglugerðarinnar:

  1. Á eftir skilgreiningunni "Heit æfing" bætist við ný skilgreining, svohljóðandi: Efna æfing: Æfing í efnaköfun í umhverfi þar sem líkt er eftir raunverulegum aðstæðum.
  2. Í stað orðanna "í afmörkuðu rými" í skilgreiningu á "reykköfun" kemur: innan um þéttan reyk og í þeim tilgangi að bjarga lífum, sinna slökkvistarfi.
  3. Við skilgreiningu á "reykköfunartíma" bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Reykköfunartími skal að lágmarki vera þrjár klukkustundir á ári.
  4. Á eftir skilgreiningunni "Reykköfunartími" bætist við ný skilgreining, svohljóðandi: Reykköfunaræfing: Þjálfun sem getur falið í sér fræðslu, undirbúning, framkvæmd og frágang.
  5. Í stað orðanna "stjórnandi reykkafara" í samnefndri skilgreiningu, kemur, hvarvetna annars staðar í reglugerðinni, í viðeigandi beygingarmynd: stjórnandi reykköfunar.
  6. Í stað orðsins "Mannvirkjastofnun" í skilgreiningunni "Þjónustuaðilar brunavarna" kemur, hvarvetna annars staðar í reglugerðinni í viðeigandi beygingarmynd: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "reglur nr. 501/1994" í 1. mgr. kemur: reglugerð nr. 728/2018.
  2. Í stað orðanna "reglna Vinnueftirlits ríkisins um þrýstibúnað, nr. 571/2000" í 5. mgr. kemur: reglugerðar nr. 1022/2017, um þrýstibúnað.

3. gr.

Á eftir orðinu "skal" í 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: sérstaklega merktur.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. málsliður 5. mgr. ásamt stafliðum falla brott.
  2. Í stað orðanna "reglum Vinnueftirlits ríkisins um áfyllingastöðvar fyrir gashylki, nr. 140/1998" í 7. mgr. 9. gr. kemur: ákvæðum reglugerðar nr. 1022/2017, um þrýstibúnað.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Fjöldi verklegra æfinga í reykköfun hjá slökkviliðum skal vera að lágmarki sex á hverju ári. Fimm skulu vera reykköfunaræfingar, þar af ein heit æfing. Þá skal ein æfing að lágmarki vera efnaköfunaræfing. Reykköfunartími skal að lágmarki vera þrjár klukkustundir á ári, sbr. 6. mgr. 3. gr.
  2. Í stað 2. og 3. málsl. 3. mgr. koma tveir nýir málsl., svohljóðandi: Þeir skulu hafa a.m.k. þriggja ára starfsreynslu sem slökkviliðsmaður og vera með gild reykköfunarréttindi á þeim tíma. Í reykköfun og reykköfunaræfingum skal annar leiðbeinandinn hafa reykköfunarréttindi í gildi.
  3. Í stað orðanna "785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun" í 4. mgr. kemur: 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
  4. Í lok 4. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Á heitum æfingum skal leitast við að lágmarka mengunarhættu.
  5. Á eftir 4. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun getur gefið út leiðbeiningar um sérstakar mengunarvarnir sem miða að einstaklingum á eldstað.

6. gr.

Í stað 3. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Stjórnandi reykköfunar skal hafa a.m.k. þriggja ára reynslu sem slökkviliðsmaður og vera með gild reykköfunarréttindi á þeim tíma.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 19. gr. reglugerðarinnar:

  1. Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Reykköfunarbók er ætlað að halda utan um þau skipti sem einstaklingur er útsettur fyrir mengun vegna reykköfunar ásamt æfingatíma vegna reykköfunar.
  2. Í stað stafliða a. til h. í 2. mgr. koma nýir stafliðir a. til e., svohljóðandi:

    1. Dagsetningu og staðsetningu reykköfunar.
    2. Tegund reykköfunar og hvort reykköfun sé vegna útkalls eða æfingar.
    3. Upphafs loftmagn og loka loftmagn, sé því komið við.
    4. Reykköfunartíma og fjölda skipta sem er reykkafað.
    5. Athugasemdir vegna atvika við reykköfun og annað sem snertir öryggi og heilsu reykkafara, s.s. ef reykkafari verður útsettur fyrir mengun.

8. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 20. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðsins "skyndihjálparbúnaður" í 2. málslið 2. mgr. kemur: öryggisbúnaður.
  2. Í stað orðsins "öndunargríma" í 2. málslið 2. mgr. kemur: viðbótarsúrefni.
  3. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun gefur út fyrirmynd að neyðaráætlun við reykköfun.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. kafla viðauka við reglugerðina:

  1. Í lok 2. mgr. i. hluta b-liðar bætist við ný málsgrein svohljóðandi: Undantekningar má gera að fengnu mati augnlæknis.

10. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 17. og 39. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 13. mars 2023.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.