Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1314/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

1. gr.

Í stað dagsetningarinnar "30. nóvember 2021" í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða II í reglugerðinni kemur: 31. júlí 2022.

 

2. gr.

Í stað orðanna "festi-/tengivagn" í 12. línu í töflu í IV. viðauka við reglugerðina kemur: eftir­vagn/tengitæki.

 

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 23. nóvember 2021.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica