Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

691/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

g-liður 1. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar breytist og verður þannig:

sem notuð er í tengslum við störf við fráveitu, flóðavernd, vatns-, gas- og rafmagnsveitu, sorphreinsun hús úr húsi, skeyta- og símaþjónustu, útvarps- og sjónvarpssendingar og við að miða út útvarps- eða sjónvarpssenda eða móttökutæki. Jafnframt flutningur með bifreið sem notuð er við viðhald á vegum og eftirlit, m.a. við snjómokstur og hálkuvarnir,

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 71. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 15. júlí 2016.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.