Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

638/2014

Hafnarreglugerð fyrir Sandgerðishöfn.

1. gr. Stærð og takmörk hafnarinnar.

Hafnarsvæði.

Takmörk á sjó eru:

2400 metra frá stórstraumsfjöruborði. Öll Sandgerðisvíkin, ásamt víkum og vogum, sem takmarkast að sunnan, af Búðarhólma, Munkasetri og áframhaldandi af Býjarskerseyri, en að norðan, bein lína úr Þorvaldi í fjörumörk milli Sandgerðis og Flankastaða.

Takmörk á landi eru:

Lína sem dregin er með austur lóðamörkum við Hafnargötu 8-9 í Vitann og með austur lóðamörkum Norðurgarðs 4.

Landsvæði hafnarinnar skiptast í:

- Hafnarbakka og bryggjur.
- Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
- Götur.
- Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnarinnar.

Sandgerðisbær er eigandi hafnarinnar. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn hafnamála, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af sveitarstjórn skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda sveitarstjórnar. Hafnarstjórn skipa 5 fulltrúar og 5 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og sveitarstjórnar.

Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar kýs formann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skulu hafnarstjóri og verkefnastjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnarinnar. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingarmál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjóri er skipaður af bæjarstjórn og fer hann með daglega stjórn hafnarinnar í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar. Hann veitir hafnarstjórn og bæjarstjórn upplýsingar um málefni hafnarinnar. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hann er yfirmaður allra starfsmanna hafnarinnar og sér um ráðningu þeirra og uppsögn.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum hafnarstjórnar og bæjarstjórn.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og aðgæslu.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnarinnar, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnarinnar getur hann kært það til hafnarstjóra.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Skip sem ætlar til Sandgerðishafnar og nota vill hafnsögumann skal gera boð um það til Sandgerðishafnar með minnst 3ja klst. fyrirvara. Skip sem eru 60 metrar eða lengri, mega ekki fara inn í höfnina án samráðs við hafnarstjóra.

Óski skipstjóri viðkomandi skips eftir hafnsögumanni er því ekki heimilt að koma nær innsiglingunni en svo, að ein sjómíla sé í innsiglingardufl við Hamarssund. Vísar hafnsögumaður skipinu leið til hafnar og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu.

Heimilt er hafnsögumanni, meðan hann hefur ekki lokið verkefni sínu að banna hverjum þeim, sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð, ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Dráttarbátur hafnarinnar er í þjónustu og ábyrgð þess skips, er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla hverju sinni. Hafnarstarfsmenn sjá um bindingu skipa, vatnsafgreiðslu og tengingu rafmagns.

7. gr. Löggæsla á hafnarsvæði.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðinu.

Þeim sem ekkert lögmætt erindi eiga á hafnarsvæðinu er bannað að dvelja þar ef þeir með því tálma lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðinu. Fólk sem fer um hafnarsvæðið er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við höfnina eða á henni. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðinu án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðinu mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri bótalaust.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfn en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnarinnar, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip til lúkningar á kostnaði á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðinu án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnarinnar, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir til lúkningar á kostnaði að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta í höfnina eða ytri höfn hennar.

Bannaður er hvers konar hvalskurður í eða við höfnina. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt inn í höfnina hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfninni nema leyfi hafnarstjóra komi til.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í höfnina olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverju tíma.

10. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfninni skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnarinnar með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu sem eru í vanskilum með gjöld til hafnarinnar og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnarinnar um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. mgr. greinarinnar.

11. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um höfn og hafnarsvæði, vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, dómkvöddum af héraðsdómi Reykjaness. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr. Kæruheimild.

Notendum Sandgerðishafnar er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Samgöngustofu. Ákvörðunum Samgöngustofu má skjóta til innanríkisráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 417/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Sandgerðishöfn nr. 798/2005, með síðari breytingum.

Innanríkisráðuneytinu, 16. júní 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.