Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

439/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð um skírteini útgefin af Flugmálastjórn Íslands, nr. 400/2008.

1. gr.

Grein 1.2.4.4.1 orðast svo:

Fluglæknar og trúnaðarlæknir heilbrigðisskorar skulu hafa fengið þjálfun í fluglæknisfræði í samræmi við ákvæði reglugerðar um heilbrigðiskröfur flugliða (JAR-FCL 3). Fluglæknar og trúnaðarlæknir skulu fá upprifjunarþjálfun með reglulegu millibili. Áður en þeir eru samþykktir skulu þeir sýna fram á nægilega þekkingu í fluglæknisfræði. Fluglæknir sem annast útgáfu 3. flokks heilbrigðisvottorðs samkvæmt reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra skal uppfylla sömu skilyrði og fluglæknir sem annast útgáfu 1. flokks heilbrigðisvottorðs samkvæmt reglugerð um heilbrigðiskröfur flugliða.

2. gr.

Á eftir VII. kafla kemur nýr VIII. kafli: Aðilar sem annast mat á tungumálakunnáttu (Language assessment bodies). Númer kafla og greina sem á eftir koma breytast til samræmis við það.

3. gr.

Grein 8.1 orðast svo:

8.1 Almennar reglur um aðila sem annast mat á tungumálakunnáttu.
8.1.1 Leyfi til að meta tungumálakunnáttu sem krafist er af flugliðum og flugumferðarstjórum skv. gildandi reglugerðum er eingöngu veitt aðila sem uppfyllir skilyrði þessa kafla.
8.1.2 Leyfi til að annast mat á tungumálakunnáttu er gefið út til allt að þriggja ára. Leyfið má fella úr gildi ef kröfur til starfseminnar eru ekki lengur uppfylltar.
8.1.3 Mat á tungumálakunnáttu skal reka sjálfstætt óháð tungumálakennslu, þar sem slík kennsla fer fram hjá sama aðila, bæði hvað varðar skipulag og mönnun.

4. gr.

Grein 8.2 orðast svo:

8.2 Stjórnun og skipulag.
8.2.1 Aðili sem vill sækja um leyfi til að annast mat á tungumálakunnáttu samkvæmt reglugerð þessari skal sýna fram á að:
a. stjórn og mönnun sé fullnægjandi;
b. gæðakerfi sé fyrir hendi sem tryggir að starfsemin fullnægi öllum kröfum og reglum.
8.2.2 Gæðakerfi skv. 8.2.1 gr. skal taka til a.m.k eftirfarandi atriða:
a. stjórnunar, skipulags og stefnumörkunar;
b. vinnuferla;
c. eftirfylgni við viðeigandi lög, reglur og viðmið;
d. skilgreiningar ábyrgðar fyrir þróun og rekstur gæðakerfis;
e. skjalfestingar;
f. gæðatryggingaráætlunar;
g. menntunar og þjálfunar matsmanna;
h. þeirra krafna sem gerðar eru til mats á tungumálakunnáttu;
i. ánægju viðskiptavina.

5. gr.

Grein 8.3 orðast svo:

8.3 Vistun gagna.
8.3.1 Aðili sem annast mat á tungumálakunnáttu samkvæmt reglugerð þessari skal vista gögn um niðurstöðu mats í að minnsta kosti sex ár.

6. gr.

Grein 8.4 orðast svo:

8.4 Mat á tungumálakunnáttu.
8.4.1 Með mati á tungumálakunnáttu skal ákveða hæfni skírteinishafa/umsækjanda til að tala og skilja það tungumál sem notað er í talfjarskiptum samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru í reglugerðum um skírteini gefnum út af Flugmálastjórn.

7. gr.

Grein 8.5 orðast svo:

8.5 Matsmenn í tungumálakunnáttu.
8.5.1 Leyfi til að meta tungumálakunnáttu samkvæmt reglugerðinni er háð því að hjá umsækjanda starfi hæfur matsmaður með fullnægjandi tungumálakunnáttu. Matsmaður í tungumálakunnáttu skal annaðhvort hafa sérfræðiþekkingu á sviði flugmála eða sérfræðiþekkingu á sviði tungumála að viðbættri flugtengdri þekkingu.
8.5.2 Matsmaður í tungumálakunnáttu skal hafa fengið viðurkennda þjálfun og sýnt fram á hæfni sína í að meta tungumálakunnáttu.
8.5.3 Leyfi matsmanna gildir í þrjú ár í senn og má fella úr gildi ef matsmaður uppfyllir ekki lengur gildandi kröfur.

8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 31. og 73. gr., sbr. 145. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 30. apríl 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.