Innanríkisráðuneyti

1074/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur nr. 277/2008.

1. gr.

Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, o og ó, sem orðast svo:

o.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 590/2010 frá 5. júlí 2010.

ó.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1071/2010 frá 22. nóvember 2010.



2. gr.

Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 791/2010 frá 6. september 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.

3. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmda­stjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 590/2010 frá 5. júlí 2010 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 (viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar öðlast þó ekki gildi hér á landi). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 55, 7. október 2011, bls. 624.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1071/2010 frá 22. nóvember 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 55, 7. október 2011, bls. 56.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 4. nóvember 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica