Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

290/2011

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Á eftir d-lið 2. mgr. 56. gr. kemur nýr liður, e-liður sem orðast svo:

Reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (EB) nr. 68/2009 frá 23. janúar 2009 um níundu aðlögun að tækniframförum á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 3821/85 um að taka upp aðlögunarbúnað vegna skráningarbúnaðar í ökutækjum í flutningum á vegum, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 143, 4. desember 2009, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 50, bls. 8, 16. september 2010.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 44. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 4. mars 2011.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.