Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

545/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð um löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda, nr. 1122/2006, með síðari breytingum.

1. gr.

1. gr. orðast svo:

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skal frá og með 1. júlí 2015 annast löggildingu dómtúlka og skjalaþýðenda.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 4. gr. laga um dómtúlka og skjalaþýðendur, nr. 148 20. desember 2000 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. júlí 2015.

Innanríkisráðuneytinu, 5. júní 2015.

Ólöf Nordal.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.