Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

1629/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar.

1. gr.

Í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar falla brott eftirfarandi iðngreinar:

  1. Feldskurður.
  2. Glerslípun og speglagerð.
  3. Hattasaumur.
  4. Hljóðfærasmíði.
  5. Klæðskurður karla. [sameinast klæðskurði]
  6. Leturgröftur.
  7. Myndskurður.
  8. Skósmíði. [sameinast skósmíðaiðn]
  9. Skóviðgerð. [sameinast skósmíðaiðn]
  10. Málmsteypa.
  11. Mótasmíði.
  12. Skipa- og bátasmíði.
  13. Stálskipasmíði. [sameinast stálsmíði]
  14. Stálvirkjasmíði. [sameinast stálsmíði]
  15. Almenn ljósmyndun. [sameinast ljósmyndun]
  16. Persónuljósmyndun. [sameinast ljósmyndun]

 

2. gr.

Í stað "klæðskurður kvenna" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: klæðskurður.

 

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í staðinn fyrir "iðnaðarráðherra" í 1. mgr. kemur: ráðherra sem fer með málefni iðnaðar.
  2. Í staðinn fyrir "menntamálaráðherra" í 2. mgr. kemur: ráðherra er fer með menntamál.
  3. 3. mgr. breytist og verður svohljóðandi: Fallist ráðherra á að löggilda greinina breytir hann þessari reglugerð til samræmis. Ráðherra getur sett sérstakar reglur um veitingu starfsrétt­inda í hinni nýju iðngrein.
  4. Við bætist 5. mgr. 2. gr. svohljóðandi: Við endurútgáfu sveinsbréfa og meistara­bréfa í löggiltri iðngrein sem breytt hefur verið um heiti á eða sem sameinuð hefur verið annarri löggiltri iðngrein skal notast við heiti iðngreinar­innar samkvæmt gildandi reglugerð.

 

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 1. mgr. 8. gr. laga um handiðnað, nr. 42/1978, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Um leið fellur reglugerð um breytingu á reglugerð um löggiltar iðngreinar nr. 1379/2022 úr gildi.

 

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2022.

 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Sigríður Valgeirsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica