Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1082/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar.

1. gr.

Í stað orðsins "netagerð" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: veiðarfæratækni.

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Við endurútgáfu sveinsbréfa og meistara­bréfa í löggiltri iðngrein sem breytt hefur verið um heiti á skal notast við heiti iðngreinar­innar samkvæmt gildandi reglugerð.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 1. mgr. 8. gr. iðnaðarlaga, nr. 42/1978, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. nóvember 2019.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Hreinn Hrafnkelsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica