1453/2025
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði, nr. 1143/2019.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
-
Í stað 1. og 2. tölul. 4. mgr. koma þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- 60% af þeim hluta sem er umfram 22.800 kr. og allt að 40.000 kr.
- 85% af þeim hluta sem er umfram 40.000 kr. og allt að 87.000 kr.
- 92,5% af þeim hluta sem er umfram 87.000 kr.
-
Í stað 1. og 2. tölul. 6. mgr. koma þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- 60% af þeim hluta sem er umfram 11.800 kr. og allt að 25.000 kr.
- 85% af þeim hluta sem er umfram 25.000 kr. og allt að 57.000 kr.
- 92,5% af þeim hluta sem er umfram 57.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 6. tölul. 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast gildi 1. janúar 2026.
Heilbrigðisráðuneytinu, 8. desember 2025.
B deild - Útgáfudagur: 23. desember 2025