Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

633/2000

Reglugerð um hækkun bóta almannatrygginga. - Brottfallin

1. gr.

Upphæðir bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993 skulu hækka frá 1. september 2000 að telja um 0,7% frá því sem þær voru í ágúst 2000.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 65. gr., sbr. 66. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 13. gr. laga nr. 118/1993 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. ágúst 2000.

 

Ingibjörg Pálmadóttir.

 

Jón Sæmundur Sigurjónsson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica