Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

135/1993

Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja, afgreiðslu þeirra og merkingu nr.421/1988. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um (14.) breytingu á reglugerð um gerð lyfseðla og ávísun lyfja,

afgreiðslu þeirra og merkingu nr. 421/1988.

1. gr.

Eftirfarandi skal bætt við viðauka 4 við reglugerðina:

________________________________________________________________________

Efni

Hámarksmagn
og/eða
takmarkanir

Dæmi um lyf og
lyfjaform, er
selja má án
lyfseðils

Áletrun og/eða upplýsingar
á fylgiseðli, sem afhenda
skal með lyfinu.

________________________________________________________________________

Loratadinum

Lyf í afmældum skömmt-
um. Einstakur skammtur
mest 10 mg. Mest 10 stk.
handa einstaklingi

CLARITYN töflur 10 mg

Gegn ofnæmi. Skammtar: Fullorðnir og
börn 12 ára og eldri: Ein tafla á dag. Lyfið
er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára.
Varúð: Barnshafandi konum og konum
með barn á brjósti er einungis ráðlagt að
nota lyfið í samráði við lækni.

________________________________________________________________________

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 16. og 17. gr. lyfjalaga nr. 108/1984, öðlast gildi 1. apríl 1993.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 19. mars 1993.

Sighvatur Björgvinsson.

Einar Magnússon.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica