Prentað þann 8. maí 2024
495/1996
Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 310/1994, um endurgreiðslu eða niðurfellingu tolls og vörugjalds af kartöfluútsæði, græðlingum og öðrum efnivörum, hráefni og hlutum til framleiðslu garðyrkjuafurða.
1. gr.
2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Niðurfelling eða endurgreiðsla gjalda samkvæmt reglugerð þessari er bundin við vörur sem tilgreindar eru hér að neðan og flokkast í eftirtalin tollskrárnúmer, sbr. viðauka I við tollalög nr. 55/1987, með síðari breytingum:
0602.1000 | Græðlingar og gróðurkvistir, án róta. |
Úr 0602.4000 | Rósir, einnig ágræddar, sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi til afskurðar. |
Úr 0602.3000 0602.4000 0602.9020 0602.9030 0602.9059 0602.9070 0602.9091 og 0602.9092 | Sáðplöntur, græðlingar og smáplöntur pottlausar eða í pottum eða bakkahólfum sem eru 6,5 cm í þvermál eða minni sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar í gróðurhúsi í a.m.k. 2 mánuði fyrir sölu, þó ekki stórar úrslegnar plöntur og rótarþvegnar plöntur. Hámarkspottastærð á ekki við um smávaxin afbrigði (mini-plöntur), kaktusa eða þykkblöðunga þar sem miða skal við ungplöntur. Hámarkspottastærð á ekki við um tegundina Nertera granadensis. Hámarkspottastærð á ennfremur ekki við um alparósir (Azalea, Rhododendron) sem fluttar eru inn á tímabilinu 1. september til 31. október. |
Úr 0602.2000 0602.3000 | Smáplöntur af garðplöntum (1/0, 0/1) sem ætlaðar eru til framhaldsræktunar á garðplöntustöð í a.m.k. eitt sumar fyrir sölu. |
0602.4000 | |
0602.9045 og 0602.9051 | |
Úr 0701.1000 | Kartöfluútsæði flutt inn á tímabilinu 1. mars til 30. apríl. |
Úr 6806.1009 | Steinull, sérstaklega gerð til framleiðslu garðyrkjuafurða. |
Úr 8539.3900 | Úrhleðsluperur, þ.e. háþrýstiperur til lýsingar í gróðurhúsum. |
Úr 9405.1009 | Háþrýstilampar til lýsingar í gróðurhúsum. |
Úr 9406.0009 | Forsmíðuð gróðurhús. |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 22. tölul. 6. gr. og 148. gr. tollalaga nr. 55/1987, og 2. mgr. 13. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum, til að öðlast gildi þegar í stað.
Fjármálaráðuneytinu, 10. september 1996.
F. h. r.
Indriði H. Þorláksson.
Guðrún Ásta Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.