Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1249/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 505/1998, um áfengisgjald, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað orðanna "frá 1.-15. hvers mánaðar og frá 16. til loka hvers mánaðar" í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. hvers mánaðar til loka hans.

2. gr.

Í stað orðanna "1. til 15. hvers mánaðar og frá 16. til loka hvers mánaðar" í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. hvers mánaðar til loka hans.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 96/1995, um gjald á áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 23. desember 2015. 

F. h. r.

Elín Guðjónsdóttir.

Benedikt S. Benediktsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica