Fjármála- og efnahagsráðuneyti

1236/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 541/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi, með síðari breytingum.

1. gr.

Heiti reglugerðar nr. 541/2001 verði:

Reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópbifreiða úr landi.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. mgr. orðast svo:
    Eftir ákvæðum reglugerðar þessarar skal endurgreiða rekstraraðilum hópbifreiða, sem undan­þegnir eru virðisaukaskatti skv. 6. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, 19,35% af sölu­verði hópbifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi, sbr. þó 2. mgr. Hafi hópbifreiðin verið nýtt í blandaðri starfsemi og virðisaukaskattur af kaupverði hennar að hluta til verið færður til innskatts lækkar endurgreiðslan sem því hlutfalli nemur.
  2. 2. mgr. orðast svo:
    Endurgreiða skal rekstraraðilum hópbifreiða, sem undanþegnir eru virðisaukaskatti skv. 6. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, 6,45% af söluverði hópbifreiða sem þeir sannanlega selja úr landi. Endurgreiðsla samkvæmt þessu ákvæði tekur til rekstraraðila þeirra hóp­bifreiða sem nýskráðar voru á tímabilinu 1. september 2000 til 31. desember 2003 og notið hafa endurgreiðslu virðis­auka­skatts skv. lögum nr. 57/2001, um breyting á lögum um virðis­auka­skatt nr. 50/1988, vegna sömu bifreiða. Hafi hópbifreiðin verið nýtt í blandaðri starf­semi og virðisaukaskattur af kaupverði hennar að hluta til verið færður til innskatts lækkar endurgreiðslan sem því hlutfalli nemur.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "tollstjórinn í Reykjavík" í 1. mgr. kemur: tollstjóri.
  2. Í stað orðanna "tollstjóranum í Reykjavík" í 2. mgr. kemur: tollstjóra.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "Tollstjórinn í Reykjavík" í 1. mgr. kemur: Tollstjóri.
  2. Í stað orðsins "hópferðabifreiðin" í 2. mgr. kemur: hópbifreiðin.
  3. Í stað orðanna "Tollstjórinn í Reykjavík" í 1. málsl. 3. mgr. kemur: Tollstjóri
  4. Í stað orðsins "hópferðabifreiðar" í 2. málsl. 3. mgr. kemur: hópbifreiðar, og í stað orðsins "hópferðabifreið" í sama málslið kemur: hópbifreið.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. gr. laga nr. 105/2000, um breyting á lögum um virðis­auka­skatt nr. 50/1988, með síðari breytingum, sbr. 49. gr., laga nr. 50/1988, um virðis­auka­skatt, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. janúar 2016.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 21. desember 2015.

F. h. r.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Hlynur Ingason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica