Fara beint í efnið

Prentað þann 10. maí 2024

Breytingareglugerð

593/2023

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 55/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Nýr stafliður bætist við 1. tölul. 1. mgr., svohljóðandi:
    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1256 frá 21. apríl 2021 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar samþættingu áhættu tengda sjálfbærni í stjórnkerfum vátrygginga- og endurtryggingafélaga, sem birt er á bls. 310-313 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 70 frá 27. október 2022.
  2. Ný málsgrein bætist við, svohljóðandi: Reglugerð skv. e-lið 1. tölul. 1. mgr. var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 90.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 50. gr. og 114. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. júní 2023.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Elísabet Júlíusdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.