Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

38/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1202/2016, um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga.

1. gr.

Í stað orðanna "frá þeirri dagsetningu er umsóknin barst" í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: eftir að endanleg gögn liggja fyrir, sbr. 4. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 6. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. janúar 2017.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.