Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 15. nóv. 2023

327/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín (VI).

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um innflutning og útflutning á víni milli Íslands og annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Vín sem upprunnið er frá landi utan Evrópska efnahagssvæðisins heyrir ekki undir reglugerðina. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í bókun 47 við samninginn (um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín), gilda hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af bókun 1 við samninginn, altækri aðlögun í inngangi að bókun 47 við samninginn og sértæka aðlögunartextanum í 1. viðbæti við bókun 47 við samninginn.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Eftirtaldar reglugerðir Evrópusambandsins um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar:

  1. Tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og skráning á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann:

    1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1576, frá 6. júlí 2015 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 489), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar tilteknar vínfræðilegar vinnsluaðferðir og á reglugerð (EB) nr. 436/2009 að því er varðar skráningu á þessum vinnsluaðferðum í skrár sem halda skal fyrir víngeirann, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  2. Aukning á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftslagsskilyrða:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/596, frá 15. apríl 2015 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 487), um breytingu á reglugerð (EB) nr. 606/2009 að því er varðar aukningu á hámarksheildarinnihaldi brennisteinsdíoxíðs ef það er nauðsynlegt vegna loftslagsskilyrða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 63/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  3. Heimild um hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2014 á tilteknum vínræktarsvæðum:

    1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1271/2014, frá 28. nóvember 2014 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 493), um að heimila hækkun marka fyrir auðgun víns sem framleitt er úr þrúgum úr uppskeru ársins 2014 úr tilteknum vínþrúguyrkjum í tilteknum vínræktarhéruðum eða hlutum þeirra, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2016, frá 18. mars 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
  4. Sameignlegt markaðskerfi í landbúnaði og sértæk ákvæði varðandi tilteknar landbúnaðarvörur:

    1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013, frá 17. desember 2013 (sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 111), um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir og um niðurfellingu á reglugerðum ráðsins (EBE) nr. 922/72, (EBE) nr. 234/79, (EB) nr. 1037/2001 og (EB) nr. 1234/2007, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2016, frá 5. febrúar 2016, um breytingu á bókun 47 við EES-samninginn um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín.
    2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2393 frá 13. desember 2017 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1305/2013 um stuðning Dreifbýlisþróunarsjóðs evrópsks landbúnaðar (EAFRD) við dreifbýlisþróun, (ESB) nr. 1306/2013 um fjármögnun, stjórnun og eftirlit með sameiginlegu landbúnaðarstefnunni, (ESB) nr. 1307/2013 um að koma á reglum um beingreiðslur til bænda samkvæmt stuðningskerfum innan ramma sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar, (ESB) nr. 1308/2013 um sameiginlegt markaðskerfi fyrir landbúnaðarafurðir og (ESB) nr. 652/2014 um ákvæði um stjórnun útgjalda er varða matvælaferlið, heilbrigði dýra og velferð dýra og sem varða plöntuheilbrigði og fjölgunarefni plantna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 273/2022, frá 23. september 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76, frá 17. nóvember 2022, bls. 25.

Flest ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013 varða ekki EES þar sem þau tengjast sameiginlegri skipulagningu markaða með landbúnaðarvörur. Því eru talin upp sérstaklega þau ákvæði sem gilda, í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 40/2016.

3. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 40. gr., sbr. 27. gr. laga nr. 130/2014, um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu og 31. gr. a laga nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.