Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 16. maí 2023

1165/2015

Reglugerð um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð.

1. gr. Reglugerðir um ríkisaðstoð.

Eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð, sem vísað er til í XV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með viðkomandi ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar, skulu öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XV. viðauka samningsins og bókun 1 um altæka aðlögun:

  1. Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 360/2012 frá 25. apríl 2012 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð sem veitt er fyrirtækjum sem veita þjónustu er hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2012 frá 7. desember 2012.
  2. Minniháttaraðstoð. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013 frá 18. desember 2013 um beitingu 107. og 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart minniháttaraðstoð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 98/2014 frá 16. maí 2014.
  3. Almenn hópundanþága frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014 frá 17. júní 2014 þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2014 frá 27. júní 2014.
  4. Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1084 frá 14. júní 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar aðstoð vegna grunnvirkja hafna og flugvalla, tilkynningarmörk fyrir aðstoð vegna menningar og varðveislu menningararfleifðar og aðstoð vegna íþróttagrunnvirkja og fjölnota tómstundagrunnvirkja og svæðisbundin rekstraraðstoðarkerfi á ystu svæðum og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 702/2014 að því er varðar útreikning á aðstoðarhæfum kostnaði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 frá 22. september 2017.
  5. Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu - framlenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923 frá 7. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 360/2012 að því er varðar gildistíma hennar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 266/2019 frá 25. október 2019.
  6. Minniháttaraðstoð og almenn hópundanþága frá tilkynningarskyldu - framlenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/972, 2. júlí 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1407/2013 að því er varðar framlengingu á gildistíma hennar og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar framlengingu á gildistíma hennar og viðeigandi aðlaganir, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2020 frá 6. ágúst 2020.
  7. Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu - framlenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1474, 13. október 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 360/2012 að því er varðar framlengingu á beitingartímabili hennar og tímabundna undanþágu fyrir fyrirtæki í erfiðleikum í ljósi áhrifanna af COVID-19 heimsfaraldrinum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2021 frá 5. febrúar 2021.
  8. Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1237 frá 23. júlí 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 um almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu þar sem tilgreindir eru tilteknir flokkar aðstoðar sem samrýmast innri markaðnum til beitingar á 107. og 108. gr. sáttmálans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2022 frá 10. júní 2022.

2. gr. Birting.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 360/2012, sbr. a-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 14/2013, 7. mars 2013, bls. 711. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 18/2013, 21. mars 2013, bls. 32.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013, sbr. b-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 36/2014, 12. júní 2014, bls. 644. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 98/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 63/2014, 30. október 2014.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014, sbr. c-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 23/2015, 23. apríl 2015, bls. 813. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 71/2014, 27. nóvember 2014, bls. 61.

Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2017/1084, sbr. d-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 668. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 52/2019, 27. júní 2019, bls. 67.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923, sbr. e-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 90/2019, 7. nóvember 2019, bls. 348. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 266/2019 verður birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/972, sbr. f-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 62, frá 24. september 2020, bls. 272-275.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1474, sbr. g-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 22, frá 25. mars 2021, bls. 641-642.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1237, sbr. h-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8/2023, frá 26. janúar 2023, bls. 443. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 196/2022 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 66/2022, 13. október 2022, bls. 47.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Um leið falla eftirfarandi reglugerðir úr gildi:

  1. Reglugerð nr. 904/2002 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um ríkisaðstoð (I).
  2. Reglugerð nr. 957/2003 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um ríkisaðstoð (II).
  3. Reglugerð nr. 835/2004 um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um ríkisaðstoð (III).
Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.