Félagsmálaráðuneyti

1016/2005

Reglugerð um gjaldskrá Íbúðalánasjóðs.

1. gr.

Lántökugjald af lánum frá Íbúðalánasjóði er með eftirfarandi hætti og skal því haldið eftir við afgreiðslu lánsins:

  1. Almenn lán sem veitt eru skv. VI. kafla laga um húsnæðismál, nr. 44/1998: 1% af lánsfjárhæð ÍLS-veðbréfs.
  2. Lán sem veitt eru skv. 16. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998: 1% af lánsfjárhæð.
  3. Lán til leiguíbúða sem veitt eru skv. VIII. kafla laga um húsnæðismál, nr. 44/1998: 0,5% af lánsfjárhæð.

2. gr.

Tækniþjónusta Íbúðalánasjóðs tekur tímagjald fyrir þjónustu sem hún veitir er nemur 3.300 kr. á klukkustund auk virðisaukaskatts miðað við byggingarvísitölu í desember 1998 og tekur gjaldið breytingum samkvæmt byggingarvísitölu.

3. gr.

Gjöld vegna innheimtu af lánum Íbúðalánasjóðs og vegna lána, sem veitt hafa verið í tíð eldri laga um Húsnæðisstofnun ríkisins og Íbúðalánasjóður hefur tekið við, sbr. 53. gr. laga nr. 44/1998, eru með eftirfarandi hætti:

  1. Við sendingu hvers greiðsluseðils vegna gjalddaga láns leggst á lánið tilkynninga- og greiðslugjald að fjárhæð 195 kr. fyrir hvert lán. Ef ekki er óskað eftir greiðsluseðli leggst á lánið greiðslugjald að fjárhæð 160 kr. fyrir hvert lán.
  2. Fyrir ítrekun sem send er að liðnum 30 dögum frá gjalddaga láns leggst á lánið ítrekunargjald að fjárhæð 360 kr. fyrir hvert lán.

4. gr.

Gjöld vegna innheimtu vanskila á lánum Íbúðalánasjóðs og vegna lána, sem veitt hafa verið í tíð eldri laga um Húsnæðisstofnun ríkisins og Íbúðalánasjóður hefur tekið við, sbr. 53. gr. laga nr. 44/1998, eru með eftirfarandi hætti:

  1. Við sendingu greiðsluáskorunar: 4.500 kr. á hverja greiðsluáskorun, auk virðisaukaskatts. Gjald er þó takmarkað við eina greiðsluáskorun á hverja íbúð vegna hvers gjalddaga.
  2. Við sendingu nauðungarsölubeiðnar: 2.000 kr. á hverja beiðni, auk virðisaukaskatts.
  3. Við gerð kröfulýsingar í uppboðsandvirði: 5.000 kr. á hverja kröfulýsingu, auk virðisaukaskatts.

5. gr.

Gjald fyrir skjalagerð vegna lána Íbúðalánasjóðs er sem hér segir:

  1. Gjald fyrir skuldbreytingu lána er 2.000 kr. fyrir hvert lán.
  2. Gjald fyrir veitingu veðleyfa er 2.000 kr. fyrir hvert veðleyfi.
  3. Gjald fyrir veitingu veðbandslausna er 2.000 kr. fyrir hvert skjal.
  4. Gjald fyrir veðflutning er 2.000 kr. fyrir hvert skjal.

Gjald vegna skjalagerðar og þjónustu Íbúðalánasjóðs við uppgreiðslu lána annarra fjármálafyrirtækja er 2.000 kr. fyrir hvert lán.

6. gr.

Gjöld vegna starfa á vegum Íbúðalánasjóðs sem unnin eru af utanaðkomandi aðilum og innheimt af þeim fara eftir þeim þjónustusamningum sem Íbúðalánasjóður hefur gert við viðkomandi aðila.

7. gr.

Þóknun vegna uppgreiðslu lána og aukaafborgana reiknast af mismun á vaxtastigi láns sem greitt er og markaðsvaxta sambærilegra nýrra lána hjá Íbúðalánasjóði ef þeir eru lægri, miðað við uppreiknaðar eftirstöðvar lánsins, núvirt frá uppgreiðsludegi til lokagjalddaga eða miðað við innborgaða fjárhæð ef um aukaafborgun er að ræða.

8. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 49. og 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um gjaldskrá Íbúðalánasjóðs, nr. 3/1999.

Félagsmálaráðuneytinu, 21. nóvember 2005.

Árni Magnússon.

Guðjón Bragason.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica