Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1079/2010

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1112/2006 um stofnanaþjónustu fyrir aldraða.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Í stað orðanna "félags- og tryggingamálaráðherra" í 2. gr. kemur: velferðarráðherra.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skv. 44. gr." í 2. mgr. kemur: ráðherra skv. 5. mgr. 48. gr.

2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Reglugerð nr. 598/2009, um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, með síðari breytingu, gildir um framkvæmd Tryggingastofnunar ríkisins.

3. gr.

4. málsl. 7. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalarkostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.

4. gr.

4. málsl. 11. gr. orðast svo: Nú tekst stofnun ekki að innheimta hlut vistmanns í dvalarkostnaði og er Tryggingastofnun ríkisins þá heimilt að halda eftir samsvarandi hluta af mánaðarlegum greiðslum vistunarframlags til viðkomandi stofnunar.

5. gr.

Í stað orðanna "heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti" í 15. gr. kemur: velferðarráðuneyti.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2011.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. desember 2010.

Guðbjartur Hannesson.

Ágúst Þór Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.