Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

352/2010

Reglugerð um breytingu á reglugerð um útleigu uppboðsíbúða Íbúðalánasjóðs, nr. 7/2010.

1. gr.

Á eftir 3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur ný málsgrein, 4. mgr., svohljóðandi:

Íbúðalánasjóði er heimilt að leigja íbúðir út til atvinnustarfsemi sem fellur að íbúðunum. Leigutaki skal við húsaleigusamning framvísa gögnum frá viðkomandi sveitarstjórn og byggingaryfirvöldum sem staðfesta leyfi og heimild fyrir viðkomandi starfsemi í íbúðunum. Liggja skal fyrir samþykki annarra sameigenda samkvæmt fjöleignarhúsalögum, nr. 26/1994. Skilyrði fyrir útleigu til atvinnustarfsemi er að ekki sé skortur á leiguíbúðum til íbúðar á viðkomandi markaðssvæði.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. tölul. 9. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, sbr. breytingu nr. 138/2008, öðlast þegar gildi.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. apríl 2010.

Árni Páll Árnason.

Óskar Páll Óskarsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.