Innviðaráðuneyti

1536/2025

Reglugerð um jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

I. KAFLIAlmenn ákvæði.

1. gr. Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum á grundvelli ákvæða laga, reglugerða og vinnureglna sem settar eru um starfsemi sjóðsins. Þá greiðir sjóðurinn önnur framlög til sveitarfélaga, samtaka og stofnana þeirra og til annarra aðila í samræmi við ákvæði laga.

2. gr. Yfirstjórn sjóðsins.

Ráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs. Sjóðurinn skal vera í vörslu ráðuneytisins sem annast afgreiðslu á vegum hans, úthlutun framlaga og samskipti við sveitarfélög og stofnanir eftir því sem við á. Ráðuneytið getur gert þjónustusamning við Fjársýsluna um að annast greiðslu framlaga, bókhald sjóðsins og aðra umsýslu. Um þóknun fyrir þjónustu sem ráðuneytið veitir sjóðnum fer samkvæmt þjónustusamningi.

Ráðherra tekur endanlega ákvörðun um úthlutun framlaga með hliðsjón af tillögum ráðgjafarnefndar, sbr. 3. gr.

Við setningu reglugerða og vinnureglna um einstök framlög skal ráðherra eiga samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga eins og lög kveða á um.

3. gr. Ráðgjafarnefnd.

Að afloknum sveitarstjórnarkosningum skipar ráðherra sjö manna ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til fjögurra ára. Sex nefndarmenn skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga en einn án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skulu tilnefndir með sama hætti.

Ráðgjafarnefnd gegnir því hlutverki að gera tillögur til ráðherra um framlög sjóðsins samkvæmt þeim reglum sem um þau gilda auk þess að vera til ráðgjafar um setningu reglugerða og vinnureglna sjóðsins og önnur framkvæmdaratriði sem nefndinni eru falin í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Ráðherra getur sett nefndinni starfsreglur.

II. KAFLIFjármögnun og rekstur.

4. gr. Tekjur.

Tekjur Jöfnunarsjóðs eru þessar:

  1. Framlag úr ríkissjóði er nemur 2,036% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs og tryggingagjöldum. Þar af rennur fjárhæð er nemur 0,235% af innheimtum skatttekjum og tryggingagjöldum til málefna fatlaðs fólks. Skal framlagið greiðast Jöfnunarsjóði mánaðarlega.
  2. Árlegt framlag úr ríkissjóði er nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars næstliðins tekjuárs og skal greiðast Jöfnunarsjóði með jöfnum mánaðarlegum greiðslum.
  3. Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars ár hvert:

    1. er nemur 0,77% til jöfnunar vegna reksturs grunnskóla,
    2. er nemur 1,44% til jöfnunar vegna málefna fatlaðs fólks.
  4. Framlög úr ríkissjóði eftir atvikum, sem ákveðin eru í fjárlögum ár hvert.
  5. Vaxtatekjur.

5. gr. Eigið fé sjóðsins.

Ráðherra er heimilt, að fenginni tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, að ákveða að eigið fé sjóðsins sé allt að 5% af árlegum tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið 4. gr., sem verja skal til greiðslu jöfnunarframlaga, m.a. til að mæta því ef ráðstöfunarfé sjóðsins verður minna eða útgjöld verða meiri en áætlað var eða vegna annarra ófyrirséðra atvika.

6. gr. Ársreikningur og ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Árlega skal semja reikning Jöfnunarsjóðs sem endurskoðaður skal af Ríkisendurskoðun. Ársreikninginn skal birta í B-deild Stjórnartíðinda.

Ársreikning og ársskýrslu skal kynna á ársfundi jöfnunarsjóðs sem haldinn er að hausti ár hvert.

7. gr. Kostnaður við rekstur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Kostnaður af rekstri sjóðsins, þar með talið kostnaður af störfum ráðgjafarnefndar, sbr. 3. gr., greiðist af tekjum hans.

III. KAFLIFramlög úr Jöfnunarsjóði.

8. gr. Ráðstöfun.

Tekjum Jöfnunarsjóðs skal ráðstafað sem hér segir:

  1. Til greiðslu bundinna framlaga skv. 4. gr. laga nr. 56/2025.
  2. Til greiðslu sérstakra framlaga skv. 5. gr. laga nr. 56/2025.
  3. Til greiðslu jöfnunarframlaga skv. 6.-9. gr. laga nr. 56/2025.
  4. Til greiðslu framlaga vegna reksturs grunnskóla skv. 10. gr. laga nr. 56/2025.
  5. Til greiðslu framlaga vegna þjónustu við fatlað fólk skv. 11. gr. laga nr. 56/2025.
  6. Til greiðslu framlaga til sveitarfélaga skv. 13. gr. laga nr. 56/2025 og annarra framlaga sem Jöfnunarsjóði er sérstaklega falið að úthluta til sveitarfélaga vegna sérstakra verkefna.

Nánari fyrirmæli um útreikning og ráðstöfun einstakra framlaga, annarra en bundinna framlaga og sérstakra framlaga vegna fjárhagserfiðleika eða sérstakra verkefna sem hafa almenna þýðingu, eru í reglugerðum um viðkomandi framlög.

9. gr. Bundin framlög.

Bundnum framlögum skal úthlutað sem hér segir í samræmi við greiðsluáætlun sem liggja skal fyrir í byrjun hvers árs:

  1. Til Sambands íslenskra sveitarfélaga, 1,479% af tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið og 1. tölul. 1. mgr. c-liðar 2. gr. laga nr. 56/2025. Framlög skulu greidd mánaðarlega.
  2. Til landshlutasamtaka sveitarfélaga, 1,379% af tekjum sjóðsins skv. a- og b-lið 2. gr. laga nr. 56/2025, sem skiptist jafnt á milli þeirra allra. Framlög skulu greidd mánaðarlega.
  3. Til að stranda straum af kostnaði vegna reksturs og skuldbindinga IHS skv. lögum um innheimtu meðlaga, sbr. d-lið 17. gr.
  4. Til Tryggingastofnunar ríkisins vegna eftirlaunasjóðs aldraðra samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra. Framlög skulu greidd í desember ár hvert.
  5. Til greiðslu framlaga sveitarfélaga í húsafriðunarsjóð samkvæmt lögum um menningarminjar. Framlög skulu greidd fyrir 1. maí ár hvert.

Jöfnunarsjóður getur krafið aðila, er nýtur framlaga skv. a-e-lið 1. mgr., um að skila endurskoðuðum ársreikningi ásamt ársskýrslu til sjóðsins.

10. gr. Sérstök framlög.

Sérstökum framlögum skal úthlutað sem hér segir:

  1. Til að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga. Ráðherra setur nánari reglugerð á grundvelli a-liðar 1. mgr. 5. gr. laga nr. 56/2025, m.a. um forsendur og útreikning framlaga, ásamt vinnureglum um úthlutun framlaga samkvæmt tillögum ráðgjafarnefndar og að fenginni umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  2. Til að greiða úr sérstökum fjárhagserfiðleikum sveitarfélaga með styrk eða láni, á grundvelli sveitarstjórnarlaga, og/eða greiðslu framlaga vegna ráðgjafar við fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélaga.
  3. Til greiðslu stofnkostnaðar við vatnsveitur á lögbýlum þar sem hagkvæmara er að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004.
  4. Til greiðslu framlaga vegna skólaaksturs í dreifbýli, sbr. 12. gr.
  5. Til greiðslu framlaga vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk, sbr. 13. gr.
  6. Til greiðslu framlaga til sérstakra verkefna sem geta haft mikla þýðingu fyrir sveitarfélög og/eða leiða til hagræðingar í rekstri og þjónustu þeirra, sbr. 11. gr.

IV. KAFLINánar um einstök framlög.

11. gr. Framlög til sérstakra verkefna.

Heimilt er að greiða framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sérstakra verkefna sem geta haft mikla þýðingu fyrir sveitarfélög og/eða leiða til hagræðingar í rekstri og þjónustu þeirra, sbr. f-lið 10. gr.

Umsóknir um framlög til sérstakra verkefna skal senda Jöfnunarsjóði. Ráðgjafarnefnd er heimilt að leita álits sérfræðinga á einstökum umsóknum. Við mat á umsóknum skal m.a. tekið tillit til notagildis verkefnanna í almannaþágu.

Þeir sem hljóta framlag samkvæmt þessari grein skulu skila skýrslu um framkvæmd verkefnis til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eigi síðar en einu ári eftir að framlagi var úthlutað. Ef sótt er um áframhaldandi stuðning við verkefni, sem áður hefur hlotið framlag úr Jöfnunarsjóði, ber umsækjanda að láta fylgja umsókn áfangaskýrslu um stöðu verkefnisins.

12. gr. Framlag vegna skólaaksturs úr dreifbýli.

Framlag vegna skólaaksturs úr dreifbýli er sérstakt framlag, sbr. d-lið 5. gr. laga nr. 56/2025, sem reiknast öllum sveitarfélögum sem uppfylla skilyrði skv. 3. mgr. Við útreikning framlagsins skal stuðst við skilgreiningu Hagstofu Íslands á dreifbýli og þéttbýli.

Í október ár hvert skal liggja fyrir áætlun um ráðstöfunarfjármagn til heildargreiðslu framlaga vegna skólaaksturs á næsta ári. Einnig skal liggja fyrir í október skipting ráðstöfunarfjármagns fyrir næsta ár á grundvelli a- og b-liðar 3. mgr.

Úthlutun framlaga vegna skólaaksturs úr dreifbýli skal vera sem hér segir:

  1. Á grundvelli áætlanagerðar sem byggir á upplýsingum frá sveitarfélögum um akstursleiðir úr dreifbýli sveitarfélags og fjölda grunnskólabarna á hverri leið sem eiga heimili lengra en 3,0 km frá skóla, miðað við 1. október ár hvert. Útreikningur framlaga byggir á lengstu akstursvegalengd innan hverrar leiðar frá heimili að skóla. Vegalengdin er margfölduð með stuðli sem tekur mið af stærð ökutækis og fjölda barna á hverri leið (miðað við akstur fram og til baka) að teknu tilliti til fjölda skóladaga á viðkomandi skólaári samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
  2. Á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum í lok hvers fjárhagsárs vegna íþyngjandi kostnaðar umfram framlög á grundvelli a-liðar, að mati sveitarstjórnar, við akstur grunnskólabarna úr dreifbýli á árinu, sem eiga heimili lengra en 3,0 km frá skóla. Ítarleg greinargerð sveitarfélags skal fylgja umsókn um viðbótarframlag. Umsókn skal hafa borist Jöfnunarsjóði eigi síðar en 15. desember fyrir almanaksárið.

Áætluð framlög á grundvelli a-liðar 3. mgr. koma til greiðslu mánaðarlega. Uppgjör fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga. Framlög á grundvelli b-liðar 3. mgr. koma til greiðslu í einu lagi í desember.

13. gr. Framlög vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Framlag vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli er sérstakt framlag, sbr. e-lið 5. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem reiknast öllum sveitarfélögum sem uppfylla skilyrði skv. 3. mgr. og sæta ekki lækkun eða niðurfellingu framlaga, sbr. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 56/2025. Við útreikning framlaga vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli skal stuðst við skilgreiningu Hagstofu Íslands á dreifbýli og þéttbýli.

Í október ár hvert skal liggja fyrir áætlun um ráðstöfunarfjármagn til heildargreiðslu framlaga vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli á næsta ári.

Úthlutun framlaga vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli fer fram á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum. Við útreikning framlaganna skal taka mið af akstursvegalengd, fjölda farþega og tíðni ferða. Út frá gögnum frá sveitarfélögum er reiknaður út árlegur kostnaður við hverja leið sem og kostnaður við hvern ekinn km. Til að gæta jafnræðis milli sveitarfélaga er sett hámark á kostnaðarþátttöku jöfnunarsjóðs fyrir hvern ekinn km og ræðst hámarkið af því heildarframlagi sem til ráðstöfunar er hverju sinni. Í þeim tilvikum þar sem kostnaður við hvern ekinn km við tiltekna ferð er lægri en hámarkið segir til um er árlegur kostnaður við leiðina greiddur að fullu.

Framlög greiðast í einu lagi í desember ár hvert.

V. KAFLIÝmis ákvæði.

14. gr. Ofgreidd og vangreidd framlög.

Hafi úthlutuð framlög til sveitarfélags verið hærri eða lægri en sveitarfélagið átti rétt á skv. lögum nr. 56/2025 skal Jöfnunarsjóður hafa frumkvæði að leiðréttingu framlaga í allt að fjögur ár eftir að sveitarfélag fékk úthlutað hinu ranga framlagi eða þegar sveitarfélagið hefði átt að fá úthlutað því framlagi sem það átti rétt á.

Hafi sveitarfélag fengið ofgreidd framlög skv. 1. mgr. er Jöfnunarsjóði heimilt að halda eftir framlögum til viðkomandi sveitarfélags til að leiðrétta ofgreiðsluna.

Greiðslur á grundvelli þessa ákvæðis skulu ekki bera vexti.

15. gr. Heimild til vinnslu persónuupplýsinga.

Jöfnunarsjóði er heimil vinnsla persónuupplýsinga, þar á meðal viðkvæmra persónuupplýsinga um fatlanir og þroskaraskanir einstaklinga sem njóta þjónustu sveitarfélaga og þarfir nemenda sem þurfa á sérfræðiaðstoð að halda í grunnskólum sveitarfélaga, í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu, að uppfylltum skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

16. gr. Aðgangur að upplýsingum.

Sveitarfélögum, stofnunum þeirra og öðrum opinberum aðilum er skylt að láta Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í té allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til ákvörðunar og úthlutunar framlaga úr sjóðnum.

17. gr. Sérstök tímabundin verkefni.

Framlögum úr ríkissjóði sem bætast við tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. 2. gr. laga nr. 56/2025 er ráðstafað til verkefna samkvæmt ákvörðun á fjárlögum ár hvert og samningum milli ríkis og sveitarfélaga ef við á.

Tímabundin verkefni eru eftirfarandi:

  1. Framlög til tónlistarskóla á grundvelli bráðabirgðaákvæðis I við lög nr. 56/2025. Framlög eru greidd á grundvelli reglna um framlög úr Jöfnunarsjóði til stuðnings við tónlistarnám og jöfnunar á aðstöðumun nemenda. Jafnframt innheimtir jöfnunarsjóður kostnað vegna verkefna sem sveitarfélög fjármagna á grundvelli tímabundins samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga, í hlutfalli við íbúafjölda á því ári sem kostnaður er innheimtur.
  2. Framlög til sveitarfélaga sem bjóða öllum nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum, sbr. bráðabirgðaákvæði III við lög nr. 56/2025. Framlag skal skiptast hlutfallslega á milli sveitarfélaga eftir heildarnemendafjölda í grunnskólum í hverju sveitarfélagi 1. janúar skólaárið á undan og greiðist mánaðarlega til sveitarfélaga frá gildistöku laganna til loka árs 2027, að undanskildum júlímánuði ár hvert. Ef ekki kemur til úthlutunar til sveitarfélags á grundvelli ákvæðisins skal reiknað framlag Jöfnunarsjóðs til viðkomandi sveitarfélags endurgreitt ríkissjóði.
    Ákveði sveitarfélag að taka gjald fyrir skólamáltíðir á grundvelli 23. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, eftir að Jöfnunarsjóður hefur úthlutað framlagi til þess á grundvelli 1. og 2. mgr., skal sveitarfélagið endurgreiða Jöfnunarsjóði úthlutað framlag til þess fyrir það tímabil sem sveitarfélagið hefur tekið gjald fyrir skólamáltíðir og skal fjárhæðin renna í ríkissjóð. Sama á við ef sjálfstætt rekinn grunnskóli, sem gert hefur þjónustusamning við sveitarfélag á grundvelli 43. gr. a laga um grunnskóla, ákveður að taka gjald fyrir skólamáltíðir.
  1. Framlög til sveitarfélaga til að innleiða samþætta farsældarþjónustu í þágu farsældar barna, sbr. 2. mgr. 13. gr. laga nr. 56/2025. Framlög til einstakra sveitarfélaga skv. 1. mgr. skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim. Nánar er kveðið á um úthlutun framlaga til sveitarfélaga í reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra setur.
  2. Jöfnunarsjóður stendur straum af kostnaði vegna reksturs og skuldbindinga IHS, sbr. 3. mgr. 1. gr. laga um innheimtu meðlaga nr. 54/1971, fram til þess að stofnunin verður lögð niður, sbr. bráðabirgðaákvæði III við þau lög.
  3. Önnur framlög sem ákveðin eru á fjárlögum ár hvert.

18. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 22. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 56/2025 og öðlast gildi 1. janúar 2026. Þá fellur jafnframt úr gildi reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um jöfnun tekjutaps sveitarfélaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, nr. 80/2001.

Innviðaráðuneytinu, 17. desember 2025.

Eyjólfur Ármannsson.

Ingilín Kristmannsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica