Félagsmálaráðuneyti

785/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 918/2020, um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um greiðslu styrkja úr Atvinnuleysistryggingasjóði.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða IV í reglugerðinni orðast svo:

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um ráðningu atvinnu­leit­anda, sem fullnýtt hefur rétt sinn til atvinnuleysisbóta innan atvinnuleysistryggingakerfisins á tilteknu tímabili, sbr. b-lið 4. mgr., enda telst ráðningin vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Vinnu­mála­stofnun er jafnframt heimilt að gera slíkan samning við frjáls félagasamtök vegna tíma­bund­inna átaksverkefna, svo sem við landvernd, landhreinsun, gróðursetningu, íþrótta- og afþrey­ingar­starf fyrir börn o.s.frv. Með frjálsum félagasamtökum er í þessu sambandi átt við félagasamtök sem starfa að góðgerðar- og/eða mannúðarmálum í þágu almannahagsmuna og eru ekki rekin í hagnaðarskyni auk þess að vera undanþegin skattskyldu skv. 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekju­skatt. Vinnumálastofnun, hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök og viðkomandi atvinnu­leitandi skulu undirrita samn­inginn. Með undirritun sinni skuldbindur viðkomandi atvinnu­leitandi sig til að gegna því starfi sem hann er ráðinn til að gegna á grundvelli samningsins. Jafnframt skuld­bindur Vinnumálastofnun sig með undirritun sinni til að greiða styrk úr Atvinnuleysis­trygginga­sjóði skv. 2. mgr. til hlutaðeig­andi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka. Þá skuldbindur hlutaðeigandi fyrir­tæki, stofnun eða félaga­samtök sig með undirritun sinni til að greiða viðkomandi atvinnu­leit­anda laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Markmiðið er að atvinnu­leitendur sem hafa full­nýtt rétt sinn til atvinnuleysis­bóta innan atvinnuleysis­trygginga­kerfisins á tilteknu tímabili, sbr. b-lið 4. mgr., fái tækifæri til að auka hæfni sína til þátttöku að nýju á vinnumarkaði þannig að komið verði í veg fyrir að langvarandi atvinnuleysi hjá þessum hópi leiði til óvinnufærni til fram­búðar.

Vinnumálastofnun er heimilt að greiða styrk til handa hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félaga­samtökum, á grundvelli samnings skv. 1. mgr., sem nemur launum viðkomandi atvinnu­leitanda en þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta á mánuði samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi atvinnuleitanda auk 11,5% mótframlags af styrkfjárhæð í lífeyrissjóð í allt að sex mánuði, sbr. þó 2. málsl. 1. mgr. 62. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar. Auk þess er Vinnumálastofnun heimilt að greiða hlutaðeigandi félagasamtökum sérstakan styrk sem nemur allt að 25% af fjárhæð þess styrks sem greiddur er á grundvelli samnings skv. 1. mgr. vegna kostnaðar hlutaðeigandi félaga­samtaka í tengslum við þau tímabundnu átaksverkefni sem um ræðir.

Óheimilt er að framlengja gildistíma samnings skv. 1. mgr. vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnu­leitandinn hafi skerta starfsgetu og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til þjálfunar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og er þá einungis heimilt að framlengja gildistíma samnings einu sinni í aðra sex mánuði að hámarki.

Skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysistryggingasjóði á grundvelli samnings skv. 1. mgr. eru meðal annars:

  1. að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka,
  2. að viðkomandi atvinnuleitandi hafi fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. október 2020 til og með 31. desember 2021,
  3. að hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök hafi a.m.k. einn starfsmann á launa­skrá áður en til ráðningar viðkomandi atvinnuleitanda kemur,
  4. að hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök sé í skilum hvað varðar launatengd gjöld og opinber gjöld, svo sem iðgjöld og mótframlag í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjöld og trygg­inga­gjald,
  5. að hjá hlutaðeigandi fyrirtæki starfi 70 starfsmenn eða færri óháð stöðugildi og að með­töldum þeim atvinnuleitendum sem ráðnir eru til starfa á grundvelli samnings skv. 1. mgr.

Samningur skv. 1. mgr. fellur úr gildi komi til slita á ráðningarsambandi milli hlutaðeigandi fyrir­tækis, stofnunar eða félagasamtaka og viðkomandi atvinnuleitanda á gildistíma samningsins. Fellur þá jafnframt niður heimild Vinnumálastofnunar til greiðslu styrks úr Atvinnuleysis­trygginga­sjóði samkvæmt ákvæði þessu. Hið sama gildir séu skilyrði fyrir greiðslu styrks úr Atvinnuleysis­trygginga­sjóði samkvæmt ákvæði þessu ekki lengur uppfyllt að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar eða ef staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda hefur ekki fylgt með reikningi hlutað­eigandi fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka til Vinnumálastofnunar vegna greiðslu styrks á grund­velli samnings skv. 1. mgr.

Hlutaðeigandi fyrirtæki, stofnun eða félagasamtök skal tilnefna sérstakan tengilið sem skal vera í samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar á gildistíma samnings skv. 1. mgr. eftir því sem þörf krefur.

Sá tími sem ráðning atvinnuleitanda varir á grundvelli samnings skv. 1. mgr. telst ekki til ávinnslu­tímabils atvinnuleitandands skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breyt­ingum, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.

Ákvæði þetta gildir frá gildistöku reglugerðar þessarar til og með 31. desember 2021.

 

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða V í reglugerðinni:

  1. Í stað orðanna "fjóra mánuði á tímabilinu 1. júní 2021 til og með 30. september 2021" í 2. mgr. kemur: fimm mánuði á tímabilinu 1. júní 2021 til og með 31. október 2021.
  2. Í stað orðsins "fjóra" í 3. mgr. kemur: fimm.
  3. Í stað dagsetningarinnar "30. september 2021" í 7. mgr. kemur: 31. október 2021.

 

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. og 64. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnu­leysistryggingar, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 5. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi.

 

Félagsmálaráðuneytinu, 30. júní 2021.

 

Ásmundur Einar Daðason.

Bjarnheiður Gautadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica