Prentað þann 28. mars 2024
Breytingareglugerð
378/2000
Reglugerð um breytingu á reglugerð um holræsi og holræsagjöld í Skeggjastaðahreppi nr. 337/1988.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:
a. | 6. málsliður orðast svo: Þá skal og hver húseigandi er tengt hefur hús sitt holræsakerfinu greiða árlega til holræsagerðarinnar 0,3% af fasteignamati húss og lóðar. |
b. | 7. málsliður fellur brott. |
Reglugerð þessi sem er samin og samþykkt af hreppsnefnd Skeggjastaðahrepps staðfestist hér með skv. X. kafla vatnalaga nr. 15/1923 til þess að öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 22. maí 2000.
F. h. r.
Húnbogi Þorsteinsson.
Sesselja Árnadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.