Félagsmálaráðuneyti

235/1979

Reglugerð um gatnagerðargjöld í Reykjahreppi. - Brottfallin

1. gr.

Hreppsnefnd Reykjahrepps ákveður að leggja á gatnagerðargjöld í sveitarfélaginu eftir þeim reglum, sem hér fara á eftir.

Heimilt er að leggja gatnagerðargjöld á land, þótt ekki sé sérstök 1óð.

 

2. gr.

Gatnagerðargjöld eru tvenns konar: A-gjöld, sem er gjald vegna þátttöku lóðarhafa í kostnaði við að undirbyggja götu með holræsalögn, og B-gjöld, sem er gjald vegna þátttöku lóðarhafa í kostnaði við lagningu bundins slitlags á götu og að ganga endanlega frá gangstétt.

Innifalið í A-gjaldi er byggingarleyfisgjald og gjald fyrir tengingu við holræsakerfi.

 

3. gr.

Við álagningu gatnagerðargjalda skal miða við ákveðið hlutfall byggingarkostnaðar á rúmmetra "vísitöluhúss", eins og hann er reiknaður af Hagstofu Íslands. Þó mega samanlögð álögð gatnagerðargjöld af húsum við hverja götu ekki nema hærri fjárhæð en nemur áætluðum meðalkostnaði við að undirbyggja þá götu með tilheyrandi lögnum og slitlagi.

Reikna skal stærð bygginga samkvæmt IST 50.

Ef fleiri en einn eigandi er að byggingu skiptast gjöld í samræmi við það rúmmál, sem hverjum tilheyrir, samkvæmt reglum Fasteignamats ríkisins.

 

4. gr.

Álagning A-gjalds og B-gjalda skal vera sem hér segir:                     

 

1

Íbúðarbyggingar:

A-gjald

B-gjald

 

1.1. Einbýlishús

2,5%

2,5%

 

1.2. Tvíbýlishús og raðhús

1,6%

1,6%

 

1.3. Fjölbýlishús

1,2%

1,0%

 

1.4. Bifreiðageymslur

1,2%

1,2%

2

Aðrar byggingar:

 

 

 

2.1. Verslanir, skrifstofur, þjónustu- og viðskipta- stofnanir

2,5%

2,5%

 

2.2. Heilbrigðis- og menntamannvirki

2,5%

2,5%

 

2.3. Iðnaðar- og annað atvinnuhúsnæði, vörugeymslur

1,2%

1,2%

 

2.4. Gripahús og geymsluskúrar

1,2%

1,2%

 

Af kjöllurum og rishæðum, sem ekki eru notaðar til íbúðar,skal greiða hálft

gjald.

 

5. gr.

Við álagningu A-gjalda fyrir íbúðabyggingar skal miða við stærð húss samkvæmt samþykktum uppdráttum. Ef ekki er fyrirliggjandi samþykktur uppdráttur skal miða við þá stærð húss, sem skipulag gerir ráð fyrir, en sé slíkt ekki ákveðið í skipulagi, skal miða við eftirfarandi lágmarksstærðir fyrir hverja íbúð án bifreiðageymslu

 

1. Einbýlishús ................................ 400 m3

2. Tvíbýlis- og raðhús .................... 350 m3

3. Fjölbýlishús ............................... 300 m3

 

Í öðrum byggingum skal við útreikning lágmarksrúmmáls til A-gjalds miða við lofthæð 3.3 m að innanmáli, nema uppdráttur sýni lægra. Miða skal við nýtingarhlutfall lóðar 0.3-0.5 eftir nánari ákvörðun byggingarnefndar hverju sinni ef það er ekki bundið að öðru leyti í samþykktu deiliskipulagi.

Við álagningu B-gjalda skal miða við lágmarksstærð húseigna 250 m3.

Hafi ákvæðum þessarar greinar um lágmarksstæðir verið beitt við álagningu gatnagerðargjalds, skulu viðbyggingar vera gjaldfrjálsar að svo miklu leyti, sem þær falla enn innan lágmarksstærðanna.

 

6. gr.

A-gjöld samkvæmt 4. gr. breytast árlega í samræmi við vísitölu byggingarkostnaðar eins og hún er í ársbyrjun á því ári, sem 1óðín er vein.

 

7. gr,

Þegar 1óð er veitt af hreppsnefnd er greiðsla A-gjalds áskilin samkvæmt reglugerð þessari.

Þegar veitt er byggingarleyfi án undangenginnar lóðaveitingar, er greiðsla A-gjalds áskilin samkvæmt reglugerð þessari, en þó aðeins af byggingaráfanga hverju sinni.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir breytingu eða endurbyggingu húsnæðis, sem felur í sér breytta notkun þess, þannig að búseignin færist í hærri gjaldflokk, er greiðsla A-gjalds áskilin. Gjaldið af hinu breytta húsnæði skal nema mismun A-gjalds fyrir og eftir breytinguna.

Sömu reglur gilda, ef notkun byggingarrýma er breytt á þann veg, að húseignin eða hluti hennar færist í hærri gjaldflokk, þótt ekki þurfi breytinga á byggingu eða endurbyggingar við.

 

8. gr.

Gjalddagar A-gjalda skulu vera sem hér segir:

Við lóðarveitingu skal greiða 60% af áætluðu gatnagerðargjaldi innan eins mánaðar frá lóðarveitingu. Eftirstöðvar skulu greiðast, þegar byggingarleyfi er veitt. Þó er heimilt að veita gjaldfrest á eftirstöðvum á allt að þrjá mánuði.

 

9. gr.

Byggingarfrestur er 12 mánuðir, þ. e. a. s. að lóð fellur aftur til sveitarsjóðs hafi framkvæmdir ekki verið hafnar innan þess tíma frá veitingu hennar, nema veitingin hafi verið háð öðrum skilmálum um byggingarfrest.

Noti lóðarhafi ekki veitta 1óð, skal hann eiga rétt á endurgreiðslu á greiddu gatnagerðargjaldi svo sem hér segir:

Eftir 6 mánuði endurgreiðast 50%.

Eftirstöðvarnar endurgreiðast eftir 12 mánuði.

Verði lóðin vent að nýju innan þess tíma, skal fyrri lóðarhafi fá gatnagerðargjaldið endurgreitt, þegar greiðsla samkvæmt þeirri úthlutun fer fram.

 

10. gr.

Hafi byggingarleyfi verið veitt í bygginganefnd og aðeins hluti þess notaður innan tilskilins byggingarfrests, skal við endurnýjun leyfisins greiða fullt gjald af þeim hluta, sem endurnýjaður er, eins og það er þá, að frádregnu gatnagerðargjaldi sem áður var greitt af sama áfanga.

 

11. gr.

Lóðin er vent í því ástandi, sem hún er í við afhendingu og á lóðarhafi engar kröfur á hendur sveitarfélaginu síðar vegna ástands hennar.

Lóðarhafi skal hlíta byggingarskilmálum, ef settir eru, svo og öllum þeim lögum og reglum, sem til greina kunna að koma.

 

12. gr.

B-gjöld samkvæmt 4. gr. skal miða við þá vísitölu, sem í gildi er við stað        festingu þessarar reglugerðar, og síðan við þá vísitölu, sem í gildi verður, þegar    lagning bundins slitlags fer fram við hlutaðeigandi götu. Nú breytist vísitala meðan     verk er unnið, og skal þá miða við meðalvísitölu á því tímabili, sem um er að ræða.

 

13. gr.

Innheimta skal B-gjald af fasteignum, sem skráðar eru við þá götukafla, sem hverju sinni er lagt á bundið slitlag.

Þegar vein er byggingarleyfi fyrir nýbyggingar, viðbyggingar og breytingu eða endurbyggingu húsnæðis, sem felur í sér breytta notkun þess, eða notkun byggingarrýma sé breytt skal innheimta bæði A-gjald og B-gjald af viðkomandi byggingu.

 

14. gr.

Ganga skal frá greiðslum á B-gjaldi samkvæmt 4. gr. á eftirfarandi hátt á því ári, sem lagning slitlags á viðkomandi götu er ákveðin, og skal við það miðað að gengið hafi verið frá greiðsluskuldbindingum áður en framkvæmdir hefjast.

Af álögðu gjaldi skal greiða 20% á framkvæmdaárinu með gjalddaga samkvæmt nánari ákvörðun hreppsnefndar við hverja framkvæmd.

Greiða má 80% gjaldsins með skuldabréfum, sem greiðast með jöfnum árlegum afborgunum á næstu fjórum árum. Skuldabréfin skulu tryggð með veði í viðkomandi fasteign og bera 18% ársvexti, er greiðast eftir á, á sömu gjalddögum og afborganir, 1. jú1í. Sveitarsjóði er heimilt að selja skuldabréfin.

Dragist framkvæmdir við viðkomandi götu eftir að gengið hefur verið frá greiðslu     skuldbindingu vegna innheimtu B-gjalds færast gjalddagar til í samræmi við það.

Lokagreiðsla af skuldabréfum skal ekki falla í gjalddaga fyrr en gangstétt hefur         verið lögð við þá götu, sem viðkomandi fasteign er skráð við.

Heimilt er að veita staðgreiðsluafslátt allt að 10%, eftir nánari ákvörðun hreppsnefndar á hverjum tíma.

Sé álagningu frestað samkvæmt 15. gr. A- eða B-liðum skal gjaldinu þinglýst sem kvöð á viðkomandi eign og falla til álagningar í samræmi við gildandi gjaldskrá og vísitölu á þeim tíma, er fresturinn rennur út, eigendaskipti verða eða aðstæður breytast á annan þann hátt að forsendur frestsins bresti.

 

15. gr.

Hreppsnefnd úrskurðar flokkun bygginga í gjaldflokka samkvæmt 4. gr. Hreppsnefnd er heimilt:

 

A. Að fresta samkvæmt umsóknum álagningu B-gjalds, þegar um er að ræða íbúðarhúsnæði elli- eða örorkulífeyrisþega, sem engar eða litlar tekjur hafa aðrar en tryggingabætur, húsnæðið af hæfilegri stærð og ekki nýtt til annars en íbúðar fyrir þá.

 

B. Að fresta samkvæmt umsóknum allt að 5 árum álagningu B-gjalda, ef um er að ræða geymslu- eða gripahús, sem líklegt má telja að fjarlægð verði innan þess tíma, enda sé umsókn rökstudd þannig.

 

C. Að lækka eða fella niður A-gjald af fjölbýlishúsum, iðnaðar- og atvinnuhúsnæði, enda liggi til þess fullgild rök hverju sinni.

 

D. Að ákveða gatnagerðargjöld sérstaklega í þeim tilvikum að mannvirki séu sérhæfð eða afbrigðileg um notkun og annað slíkt.

 

E. Að gera sérsamninga um gjalddaga, þegar greiða skal á sama tíma A- og B-gjald, þegar um er að ræða umfangsmiklar byggingarframkvæmdir eins aðila, eða aðrar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

F. Að hækka eða lækka gjaldstuðla samkvæmt 4. gr, hvern fyrir sig eða alla í einu um allt að 50% án frekari staðfestingar ráðuneytisins.

 

16. gr.

Gatnagerðargjaldi fylgir lögveð í fasteign þeirri, sem það er lagt á, og gengur það ásamt vöxtum og dráttarvöxtum fyrir öllum veðkröfum, sem á eigninni hvíla, og tekur einnig til vátryggingarfjár eignarinnar. Heimilt er að taka gjöld þessi lögtaki samkvæmt lögum nr. 29/1885.

Hreppsnefnd sker úr um meiri háttar ágreining, sem rísa kann um álagningu samkvæmt reglugerð þessari.

 

Reglugerð þessi, sem samin er og samþykkt af hreppsnefnd Reykjahrepps í S-Þingeyjarsýslu, staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 51 16. maí 1974 um gatnagerðargjöld til þess að öðlast gildi þegar í stað.

 

Félagsmálaráðuneytið, 30. apríl 1979.

 

F. h. r.

Hallgrímur Dalberg.

Hólmfríður Snæbjörnsdóttir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica