ÁKVÖRÐUN SAMEIGINLEGU EES-NEFNDARINNAR
nr. 27/2011 frá 1. apríl 2011
um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.
SAMEIGINLEGA EES-NEFNDIN HEFUR TEKIÐ NEÐANGREINDA ÁKVÖRÐUN
með vísan til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með áorðnum breytingum samkvæmt bókun um breyt-
ingu á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, er nefnist „samningurinn“ í því sem hér fer á eftir, einkum ákvæða
98. gr., og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) XXII. viðauka við samninginn var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 127/2010 frá 10. nóvember 2010 ().
2) Fella ber inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2010 frá 23. júní 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, (IFRS-staðal) nr. 1 ().
3) Fella ber inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2010 frá 30. júní 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-staðla) 1 og 7 ().
4) Fella ber inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 632/2010 frá 19. júlí 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 24 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 8 ().
5) Fella ber inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 633/2010 frá 19. júlí 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) 14 ().
6) Fella ber inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 662/2010 frá 23. júlí 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) 19 og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 1 ().
ÁKVÖRÐUNIN ER SVOHLJÓÐANDI:
1. gr.
Eftirfarandi undirliðir bætist við í lið 10ba (reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1126/2008) í XXII. viðauka við samninginn:
„– 32010 R 0550: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 550/2010 frá 23. júní 2010 (Stjtíð. ESB L 157, 24.6.2010, bls. 3),
– 32010 R 0574: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 574/2010 frá 30. júní 2010 (Stjtíð. ESB L166, 1.7.2010, bls. 6),
– 32010 R 0632: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 632/2010 frá 19. júlí 2010 (Stjtíð. ESB L 186, 20.7.2010, bls. 1),
– 32010 R 0633: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 633/2010 frá 19. júlí 2010 (Stjtíð. ESB L 186, 20.7.2010, bls. 10),
– 32010 R 0662: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 662/2010 frá 23. júlí 2010 (Stjtíð. ESB L 193, 24.7.2010, bls. 1).“
2. gr.
Íslenskur og norskur texti reglugerða (ESB) nr. 550/2010, 574/2010, 632/2010, 633/2010 og 662/2010, sem verður birtur í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, telst fullgiltur.
3. gr.
Ákvörðun þessi öðlast gildi 2. apríl 2011, að því tilskildu að allar tilkynningar samkvæmt 1. mgr. 103. gr. samningsins hafi borist sameiginlegu EES-nefndinni (∗).
4. gr.
Ákvörðun þessi skal birt í EES-deild Stjórnartíðinda Evrópusambandsins og EES-viðbæti við þau.
Gjört í Brussel 1. apríl 2011.
Fyrir hönd sameiginlegu EES-nefndarinnar
Gianluca Grippa
starfandi formaður.
(∗) Engin stjórnskipuleg skilyrði gefin til kynna.
Stjtíð. ESB L 58, 3.3.2011, bls. 85, og EES-viðbætir við Stjtíð. ESB nr. 12, 3.3.2011, bls. 30.
Stjtíð. ESB L 157, 24.6.2010, bls. 3.
Stjtíð. ESB L 166, 1.7.2010, bls. 6.
Stjtíð. ESB L 186, 20.7.2010, bls. 1.
Stjtíð. ESB L 186, 20.7.2010, bls. 10.
Stjtíð. ESB L 193, 24.7.2010, bls. 1.