Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

11/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1136/2009 (um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1136/2009 frá 25. nóvember 2009 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IFRIC-staðal 1.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1136/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 71/2010, 16. desember 2010, bls. 294.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 94/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 59/2010, 21. október 2010, bls. 20.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 13. janúar 2011.

Árni Páll Árnason.

Helga Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.