Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

599/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1262/2008 (að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 13).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1262/2008 frá 16. desember 2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun) nr. 13.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1262/2008 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 39/2010, 15. júlí 2010, bls. 713.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 47/2009, 3. september 2009, bls. 41.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 16. júlí 2010.

F. h. r.

Jónína S. Lárusdóttir.

Þóra M. Hjaltested.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.