Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

311/2004

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna nr. 148 1. mars 2000.

1. gr.

1. og 2. mgr. 7. gr., sbr. reglugerð nr. 268 21. mars 2001, orðist svo:
Verð hlutamiða í hvorri flokkaröð skal vera 10.800 kr. ef keyptur er miði sem gildir í öllum 12 flokkum happdrættisársins sem er frá 1. maí til 30. apríl ár hvert.

Verð miða fyrir hvern flokk er 900 kr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í lögum um happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, nr. 16 13. apríl 1973, sbr. lög nr. 53 25. maí 1976, lög nr. 24 26. mars 1987 og lög nr. 21 17. apríl 1997, um breyting á þeim lögum, öðlast gildi 20. apríl 2004.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 18. mars 2004.

Björn Bjarnason.

Fanney Óskarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.